Nýr Mazda CX-60 PHEV, fjórhjóladrifinn tengitvinnbíll, kominn í forsölu hjá Brimborg
- Hágæða japönsk tækni
- 63 km drægni á rafmagni fyrir allan daglegan akstur
- Öflugt fjórhjóladrif, góð veghæð og mikið afl
- Dráttargeta fyrir ferðavagna og aðra eftirvagna er 2.500 kg
- Kjörstillikerfi fullkomnar sambandið milli bíls og ökumanns
Brimborg kynnir í forsölu Mazda CX-60 PHEV, nýjan hágæða jeppa, frá japanska bílaframleiðandanum Mazda Motor Corporation. Mazda hefur unnið að nýrri kynslóð jeppa með yfir 100 ára reynslu í farteskinu þar sem lögð er áhersla á hágæði til jafns við þá bestu í flokki hágæðabíla.
Þetta gildir hvort sem er litið til smíðagæða yfirbyggingar, innréttingar, hönnunar, fjórhjóladrifstækni, umhverfisáhrifa með mikilli drægni á rafmagni og lágu kolefnisspori eða þæginda með átta gíra sjálfskiptingu.
Von er á reynsluaksturs- og sýningarbílum til Brimborgar miðvikudaginn 20. júlí en forsala á bílnum er hafin í vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg.
Allt að 63 km drægni á 100% rafmagni
Mazda CX-60 PHEV er með stóra 17,8 kWst drifrafhlöðu sem auðvelt og hratt er að hlaða heima eða í vinnu og drægni á rafmagni samkvæmt WLTP staðli í 100% rafmagnsstillingu er allt að 63 km. Sú drægni hentar einstaklega vel í allan daglegan akstur þar sem meðalakstur Íslendinga er um 40 km á dag.
Fjórhjóladrifinn, kraftmikill 327 hestafla tengiltvinnrafbíll með góða veghæð
Mazda CX-60 PHEV er fjórhjóladrifinn, kraftmikill tengiltvinnrafbíll þar sem öflug drifrafhlaða og rafmótor og fjögurra strokka 2,5 lítra bensínvél skila samanlagt 327 hestöflum og 500 Nm togi. Upptakið er aðeins 5,8 sekúndur í 100 km hraða og veghæðin er einstaklega góð þar sem 17,6 cm eru undir lægsta punkt.
Fullkominn ferðabíll með 2.500 kg dráttargetu
Nýr Mazda CX-60 PHEV er einstaklega þægilegur ferðabíll fyrir fjölskylduna. Rúmgóður með framúrskarandi fjöðrun, með kraftmikilli, sparneytinni vél og rafmótor og einstakri dráttargetu fyrir ferðavagna og aðra eftirvagna.
Dráttargetan er 2.500 kg og til að auka öryggi getur ökumaður valið sérstaka Towing stillingu, auk þess sem Kinematic Posture Control (KPG) stýringin veitir stöðugleika í beygjum og við hemlun.
Kjörstillingakerfi til ómældra þæginda fyrir hvern ökumann bílsins
Kjörstillingakerfið (Driver Personalisation System) í Mazda CX-60 PHEV er frábær hágæðanýjung sem hægt er að fá í Comfort-pakkanum fyrir Takumi og Homura búnaðarútfærslurnar. Kerfið er þríþætt og hannað í takt við þá stefnu Mazda að fullkomna sambandið á milli bíls og ökumanns.
Það vistar og aðlagar yfir 250 stillingaratriði fyrir hvern og einn þeirra, meðal annars akstursstöðu, stillingar á hljómtækjum og miðstöð.
Síðast en ekki síst sér svo kjörstillingakerfið til þess að sem auðveldast sé fyrir ökumann að stíga inn eða út úr bílnum með því að færa sætið og stýrið úr vegi rétt á meðan.
Ríkulegur staðalbúnaður skapar hágæða upplifun
Mazda CX-60 PHEV er með ríkulegum staðalbúnaði og má þar nefna 20“ álfelgur, GPS vegaleiðsögn, bakkmyndavél, nálægðarskynjara að framan og aftan, blindapunktsaðvörun, lyklalaust aðgengi, þjófavörn, upphitanlegt stýri, framrúðuskjá, 12,3“ margmiðlunarskjá og sjálfvirka lækkun og hækkun á aðalljósum sem þýðir sjálfvirka aðlögun að aðstæðum.
Með Convenience & Sound aukabúnaðarpakkanum fylgir svo hágæða BOSE hljómkerfi með 12 hátölurum.
Mazda CX-60 PHEV býður upp á fjölbreytta tækni sem gerir akstursupplifunina öruggari og þægilegri fyrir ökumann. Meðal nýjunga í Mazda CX-60 PHEV er háþróuð 360 gráðu myndavélartækni með fjórum myndavélum.
Einstök þægindi með MyMazda appinu
Dagleg umgengni og notkun á Mazda CX-60 PHEV er virkilega þægileg með aðstoð MyMazda appsins.
Nýr Mazda CX-60 PHEV í Vefsýningarsalnum
Fjöldi nýrra Mazda CX-60 PHEV eru nú sjáanlegir í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg þar sem áhugasamir kaupendur geta séð áætlaðan afhendingartíma á draumabílnum.
5 ára ábyrgð er á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
Aðrar umfjallanir
Hjörtur í vondu skapi getur reynst stórhættulegur. Hann getur til dæmis tekið upp á því að skeyta skapi sínu á hlutum sem hann hefur ekkert með að gera.
Skoda hefur enn einu sinni fengið hóp lærlinga í starfsnámi til að vinna að sínum eigin hugmyndabíl, sem verður rall-tilbúin...
Nú styttist í útgáfu kvikmyndar um ofurhetjuna The Flash. Kvikmynda- og teiknimyndasögu heimurinn bíður spenntur og það af góðri ástæðu...
Síðasti kubburinn rataði á sinn stað í gær og þar með var hann tilbúinn: Stærsti Formúlu 1 Legobíll í heimi.