image

Lexus NX útnefndur besti lúxussportjeppinn í millistærð hjá Auto Express

Önnur kynslóð Lexus NX sem kynnt var á síðasta ári hefur verið valin besti lúxussportjeppinn í millistærð hjá Auto Express. Nýr NX fær lofsamlega dóma, sérstaklega plug-in Hybrid útgáfan, NX 450h+.

Nýjum NX var vel tekið þegar hann var kynntur hér á landi í byrjun ársins.

image

Hönnun hans hefur vakið athygli og þykir innanrýmið sérstaklega glæsilegt þar sem vel fer um ökumann og farþega.

image

Drægni NX 450 h+ á rafmagni eingöngu er allt að 80 km en einnig má aka með sameinuðum krafti rafmagns og bensínvélar og þannig er bíllinn 306 hestöfl. Lexus NX 450h+ fææst í tveimur útgáfum, Executive og F-Sport og kostar frá 11.290.000 kr.

image
Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is