Rimac Nevera: Loksins kominn á götuna

Fyrsti framleiðslubíllinn frá Rimac er loksins tilbúinn og kominn á götuna.

Við höfum öðru hvoru fjallað um „ofursportbíla“ á vefnum okkar, og þar á meðal Rimac. Núna er „farið að birta á jökulinn“ hjá þeim og norski bílavefurinn BilNorge var með frétt um Rimac í gær:

Eftir fimm ára þróun og prófanir - þar á meðal þrjár kynslóðir af driflínu, 18 frumgerðir og fullt af árekstraprófunum, var Rimac Nevera loksins samþykktur til framleiðslu.

Reyndar sáum við Rimac í fyrsta skipti á sýningunni í Frankfurt árið 2011 og núna verður bíllinn handsmíðaður í allt að fimmtíu eintökum á ári og afhentur væntanlegum viðskiptavinum um allan heim.

image

Rimac í vetrarprófunum í Norður Svíþjóð

Í apríl sagði BilNorge frá því að Rimac-bíllinn hafi verið  prófaður í snjó og kulda í Norður-Svíþjóð:

Verkfræðingarnir hafa unnið að fínstillingu ABS, ESP og „torque vectoring“ áður en fyrstu framleiðslubílarnir verða afhentir eftir nokkra mánuði.

Rafbíllinn er nú þegar samþykktur fyrir Bandaríkin og ESB, en til að tryggja að öll kerfi virki sem best við allar aðstæður, ferðaðist Rimac til Svíþjóðar til að sannreyna þann árangur sem þeir hafa áður náð á veginum og í loftslagsklefanum.

Það var líka gott tækifæri til að prófa vetrardekk Rimac sem mælt er með - Pirelli P Zero Winter - við raunhæfar aðstæður. Dekkin hafa verið þróuð í nánu samstarfi Rimac og Pirelli, en króatíski framleiðandinn hefur valið Michelin Pilot Sport 4S til notkunar á sumrin.

„Prófið gaf okkur frábært tækifæri til að athuga hvort allt virkaði fullkomlega í lágum hita. Hlutirnir gerast mun hægar á ís en á malbiki og eftir þessar vikur höfum við séð nákvæmlega þær niðurstöður sem við vorum að leita að,“ segir Miroslav Zrnčević, prófunar- og þróunarstjóri Bugatti Rimac.

image

En það líður ekki á löngu þar til fyrstu viðskiptavinirnir fá bílana sína - nokkrir bílar eru þegar í framleiðslu; ferli sem tekur fimm vikur. Rimac er með 25 umboð sem dreifð eru um Bandaríkin, Evrópu, Miðausturlönd og Asíu.

Rimac segir að framleiðsla fyrsta árs sé þegar seld, svo hér þarf bara að sýna þolinmæði - eitthvað sem viðskiptavinir rafbíla eru vanir. Samkvæmt áætlun verða smíðaðir alls um 150 bílar - hver þeirra sérsniðinn og einstakur.

Nevera er þróað frá grunni og flest kerfi og íhlutir eru smíðaðir „á staðnum“. Annað var ekki nógu gott til að fullnægja ströngum kröfum Mate Rimac. Driflínan hefur meðal annars verið endurhönnuð þrisvar sinnum - í hvert sinn með auknu afli í kjölfarið.

image

Rimac hefur einnig þróað sinn eigin rafhlöðupakka upp á 150 kWt sem hluta af burðarvirkinu.

Sá öflugasti

image

Við fyrri prófanir á bílnum hefur komið í ljós að hann er öflugur, með fjóra mótora, einn í hverju horni af samtals u.þ.b. 1900 hestöflum, gerir það að verkum að bíllinn nær 300 km/klst 2,5 sekúndum hraðar en þeir höfðu búist við. Nú tekur það 9,3 sekúndur.

image

Mikil vinna að baki

„Í upphafi Nevera-ferðalagsins bjuggum við til við þúsundir sýndarhermingar og gerðum tilraunir með mismunandi hönnun áður en við bjuggum til fyrstu frumgerðina hæfa til aksturs,“ segir Mate Rimac.

„Á þeim tíma störfuðu um 300 manns í fyrirtækinu. Þegar við förum nú í framleiðslu höfum við fimmfaldast í 1.500 starfsmenn og erum komin vel á veg með nýja Rimac svæðið okkar sem er 100.000 fermetrar.“

Og við getum fræðst nánar og fengið meiri upplýsingar frá Mate Remac með því að smella á vídeóið hér að neðan:

Tengdar greinar:

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is