„Það besta við þetta heimili er hið síbreytilega útsýni,“ segir fyrrum skrifstofublókin Matt Payne sem sagði bless við skrifstofuna fyrir fullt og allt og keypti geggjaðan hertrukk. Hann hefur ferðast um Mongólíu, Gobi eyðimörkina og skoðað heiminn frá heimilinu: DAF T244.
Ekki amalegt útsýnið hérna!
Meðfylgjandi myndir: YouTube
Árið 2016 hætti Matt að vera skrifstofublók og hefur verið ævintýramaður síðan þá. Hann seldi húsið sitt og breytti tæplega 11 tonna Leyland DAF T244 í torfæruhúsbíl og lífið er gott, að sögn Matts.
Með 5.9L Cummins vél, 6 gíra kassa, 145 hestöfl, 335 lítra af vatni og þessi líka fínu sæti úr Audi TT fer bíllinn vel með Matt og virðist komast á afskekktustu staði.
Virðist notalegt og heimilislegt – enda heimili þótt á hjólum sé.
„Ég smíðaði bílinn til að ferðast um heiminn, fara á fáfarna staði og gegnum eyðimerkur. Bíllinn er með nóg eldsneyti og í honum eru nægar vistir til að komast af býsna lengi utan alfaraleiðar,“ segir Matt en hér fyrir neðan er fínasta myndband þar sem hann segir meira frá lífinu á flakki.
Tengdar greinar:
Aðrar umfjallanir
Breskir bílar geta, rétt eins og breskur matur, verið óætir. Nei, afsakið öll! Auðvitað átti að standa þarna óútreiknanlegir. Það sama er að segja um farartækin í bresku vísindaskáldskaparþáttunum um Doctor Who. Lítum nánar á The Whomobile.
Það er ekki merkilegt að fylgjast með einhverjum þvo bíl, svona alla jafna. En það er hrein unun að horfa á WRC-rallýbíla innan um allar snekkjurnar í Monte Carlo. Jú, það er verið að skola af bílunum og það er bara fínt.
Dómnefndarmenn í vali á heimsbíl ársins 2021 hafa þrengt lista yfir keppendur til lokaverðlauna í ár. Núna er aðeins um að velja 10 bíla í aðalflokknum...
Það hefur töluvert aukist að láta „míkróskera“ dekk til að bæta hæfni þeirra til að takast á við vegyfirborð í bleytu eða hálku...