Þríhjól, bátur og hjólhýsi í einni græju
BeTRITON er ótrúlegt rafknúið tveggja manna farartæki. Það er í senn ökutæki (þríhjól), hjólhýsi og bátur. Drægni á landi er rúmir 50 kílómetrar og ofan á það bætast rúmir 20 kílómetrar á siglingu. Verðið er 14.500 evrur eða um tvær milljónir króna.
Það er auðvitað smekksatriði hvort BeTRITON sé eitthvað fyrir augað. Mér þykir þetta forljótt stykki en öðrum gæti fundist það fagurt sem nellika í sólskini. Hugmyndin er góð en þar sem BeTriton er nýkomið á markað er fullsnemmt að segja til um hversu vel tekist hefur til.
Hámarkshraði á landi er 25 km/klst en 5 km/klst á siglingu.
Fleiri ferðagræjur:
Aðrar umfjallanir
Af hverju er það svona mikilvægt? Aðeins við ákjósanlegasta þrýstinginn sem framleiðandi tiltekins bíls tiltekur mun dekkið – vegna þyngdar bílsins – ná að snerta yfirborð vegarins með öllum slitfletinum, og í vetrarfærð er það mikilvægt að nýta allt mynstrið til að ná sem bestu viðnámi.
Í júlí rúlluðu síðustu eintökin af Bjöllunni frá Voilkswagen af færibandinu í verksmiðjum VW í Puebla í Mexíkó