Gleðiakstur: Sérútgáfur og skrautlegir bílar
Ekki er síður lagt upp úr skreytingum bílanna en fólksins sem er í forgrunni gleðigöngunnar eða Gay Pride víðsvegar um heiminn. Ýmsir bílaframleiðendur hafa komið með alveg spes útgáfur af bílum í tilefni Gay Pride í gegnum tíðina og hefur úrkoman heldur betur verið skrautleg.
Ford og „Very Gay“
Fyrir tuttugu og fjórum árum síðan kom Ford Ka í alveg spes útgáfu sem eins konar pallbíll.
Myndir/Ford Media
Í fyrra var það svo „Very Gay“ Ford Ranger Raptor. Þessir bílar voru aðallega skreyttir fyrir Gleðigöngu og til að sýna „lit“ og stuðning.
Myndir/Ford Media
Annar „Very Gay“ Raptor var kynntur á Goodwood í sumar og nokkuð ljóst að Ford lætur sig málefni hinsegin fólks varða.
Bentley Continental V8
Bentley Continental V8 kom líka í litum regnbogans (filma) árið 2020 og Porsche var sömuleiðis með á nótunum og voru sex eintök af 911 í fallegum litum 2020.
BMW í Bandaríkjunum sýndi líka stuðning í verki árið 2020 og setti regnbogafilmu á bíla í tilefni Gay Pride.
Mynd/BMW N-America
Lögreglubílar og fleira gott
Það er áhugavert að sjá að víða í Bandaríkjunum hafa lögreglubílar verið skreyttir og sömuleiðis í Bretlandi. Hér eru nokkur dæmi:
Hér eru svo í lokin fáein dæmi utan úr heimi og ein frá Gleðigöngunni hér á Íslandi en myndina tók undirrituð árið 2013. Ef lesendur eiga myndir af skemmtilega skreyttum bílum þá er um að gera að deila þeim með okkur á Facebook.
Ómar Ragnarsson þarf vart að kynna en hér er hann á „Ást“. Mynd/M.B.
Fleira litskrúðugt og líflegt:
Aðrar umfjallanir
Munið þið eftir „vægast-sagt-spes“ náunganum um daginn sem bjó til fyrstu þotuknúnu Tesluna? Jú, ég hélt það nú líka! Og munið þið eftir hinum „nokkuð-spes“ náunganum? Sem setti V8 mótor í Teslu? Akkúrat. Tveir náungar sem maður gleymir ekki svo glatt. Hér hittast þessir tveir og ekki nóg með það…
Þó að tónlistarkonan Dolly Parton hafi ekki sungið sitt síðasta þá hefur hún lagt rútunni sem hún hefur notað á tónleikaferðalögum síðastliðin 13 ár. Nú geta áhugasamir gist í rútunni og fundið fyrir nærveru Dolly Parton þó svo að hún sé nú ekki í rútunni sjálf.
Þegar fólk kemur á bílasölu eða í bílaumboð er eðlilegt að það prófi bíl eða bíla áður en veskið er tekið upp. Hér rifja tveir gamlir bílasalar upp reynsluakstur tveggja viðskiptavina. „Reynsluakstur sem seint gleymist“ á við í báðum tilvikum.
Hvernig ætli lögreglumanni líði þegar sturlaður byssumaður „plaffar“ á hann? Miðað við þennan náunga í lögreglunni í Oklahoma virðist þetta nú ekki neitt til að kippa sér upp við. Hann er hér á hraðbrautinni að elta byssumann og ekur utan í bílinn hjá glæponinum sem lætur skotum rigna á löggubílinn.