Ekki ýta 257 sinnum á takkann!

En það sleppur ef þú ýtir 256 sinnum í röð á takkann á fjarstýringu bílsins. Annars fer allt í vitleysu! Sturlaðar staðreyndir á borð við þessa eru innihaldsefni þessarar greinar.

image

Þetta, gott fólk, getur virkað eins og svarthol og er best að halda sig fjarri slíku. Mynd/Unsplash.com

Nema hvað! Ef svo vill til að þetta sé gert nógu oft í röð, nánar tiltekið 257 sinnum, já þá hætta bíll og fjarstýring að tala saman, eins og útskýrt er ágætlega á vefnum HowStuffWorks.

Svona margir bílar eru til

image

Mynd/Unsplash

Tæplega einn og hálfur milljarður bíla er í heiminum núna (2022) en árið 1986 voru þeir 500 milljónir talsins. Samkvæmt rannsókn á vegum Bernstein, sem lesa má nánar um hér, verða tveir milljarðar bíla á jörðinni árið 2040.

image

Skjáskot/Wikipedia

Hér er topp 20 listi yfir fjölda bíla á hverja þúsund íbúa eftir löndum heimsins og kemur í sjálfu sér ekki á óvart að Ísland sé ofarlega, en að Íslendingar séu nálægt Bandaríkjamönnum kemur, tjah, mér reyndar á óvart! En þetta er reyndar ekki alveg 100% á Wikipedia en hér má skoða töfluna eins og hún leggur sig.

30.000 stykki

Talað um að hver bíll sé búinn til úr 30.000 hlutum (þá er hvert einasta smælki, skrúfa og ró talin með), það er að segja að meðaltali.

Endurvinnsla, hægri og vinstri

Um 80% bílsins má endurvinna og með því að smella hér má lesa fleiri áhugaverðar endurvinnslustaðreyndir.

image

Mynd/Unsplash

Hægri umferð er algengari en vinstri umferð og áætlað er að um 66% allra ökumanna í heiminum aki hægra megin.  

Hrikalega gamalt bílablað

Fyrsta bílablaðið kom út árið 1895.  „The Horseless age“ var eins konar leiðarvísir um hvernig ætti að skipta úr hestum yfir í hestöfl, ef svo má segja. Blaðið er raunar enn gefið út en nafnið er annað, eins og fjallað er um í annarri grein.

image

Úr hrikalega gömlu í hrikalega flott

image

Hvergi munu vera fleiri bílar af Rolls-Royce gerð (per íbúa) en í Hong Kong. Mörg hótel þar bjóða gestum afnot af slíkum eðalvögnum eins og fjallað er um í þessari grein hér.

Þetta voru nokkrar staðreyndir úr heimi bílanna! Hverri staðreynd fylgir auðvitað krækja á vefsíður og er það ljómandi góð lesning sem ætti að endast allt kvöldið en svo má líka gera eitthvað allt annað á þessu ágæta laugardagskvöldi.

Hér eru nokkrar tillögur:

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is