Aðfararnótt þriðjudagsins 23. ágúst sást helst til óvenjulegt farartæki á neðanjarðarlestarstöð í Madrid. Farartækið sjálft er ekki óvenjulegt í umferðinni ofanjarðar en á neðanjarðarlestarstöðinni við Plaza Eliptica átti það ekki heima.
Bílnum hafði einhver stolið og þessi „einhver“ virðist hafa ætlað með lestinni því þangað hafði hann ekið, niður að brautarpalli. Þjófurinn reyndist ekki slasaður en farið var með hann á sjúkrahús engu að síður. Nú er búið að handtaka mann (mögulega „einhvern“) í tengslum við þessa undarlegu flóttaleið, eða ferðalag, á stolna bílnum.
Slökkviliðsmenn komu bílnum upp á yfirborð jarðar en fróðlegt hefði verið að vita hvernig sá sem kom bílnum þangað niður, hafi séð framhaldið fyrir sér. Það er að segja ef hann hefði ekki fest bílinn þarna í „neðra“.
Af öðrum stolnum eða föstum bílum:
Aðrar umfjallanir
Rafbílafyrirtækið London Electric Vehicle Co., framleiðandi leigubifreiða í Bretlandi, sem er í eigu kínverska bílaframleiðandans Zhejiang Geely Holding, hefur sett upp söluumboð...
...þá mega þeir eiga það að auglýsingarnar frá Land Rover eru oft skemmtilegar!
Við Gíbraltar tíðkaðist það, fyrir ekki svo löngu, að láta bíla gossa í hafið. Ef bílar voru skildir eftir á „röngum“ stað þá gat allt eins verið að einhverjir ýttu honum fram af klettunum. Af hverju? Jú, það voru of margir bílar og ýmsum fannst góð hugmynd að fækka þeim með þessum hætti.
Ef þig hefur einhvern tímann langað til að láta kappakstursbílstjóra aka þér um Nürburgring brautina, eða „Græna Helvítið“ eins og hún er kölluð, en þér er umhugað...