Hin stórvarasama „stereo-tónlist“
Hætturnar leynast víða og hér er hættan í formi tónlistar. Í frétt sem birtist fyrir 42 árum í Vikunni kemur nefnilega fram að vísindamenn hafi komist að því að lífhættulegt geti reynst að „kveikja á stereo-segulbandinu“ í bílnum.
Skjáskot/Vikan, 13. mars 1980.
„Bandarískir vísindamenn koma víða við í rannsóknum sínum. Nú hafa þeir komist að því að lífshættulegt getur reynst að kveikja á stereo-segulbandinu í bílnum á meðan á akstri stendur. Donald A. Norman, sálfræðiprófessor við Kaliforníuháskóla, segir:
Eitt af því versta sem þú getur gert sjálfum þér er að kaupa stereohljómflutningstæki í bílinn þinn. Tónlistin, sérstaklega ef hún er góð, tekur hug þinn allan og færir athyglisgáfuna frá akstrinum yfir í heim tónanna.
Slíkt getur reynst afdrifaríkt, jafnvel lífshættulegt — því við akstur verða bílstjórar að hugsa um aksturinn eingöngu eigi þeir að vera öruggir.
Tónlistin veldur því að þú hættir að heyra nokkuð annað en hana.
Svo getur farið í draumaheimi tónanna að þú heyrir ekki einu sinni í vælandi sírenu að baki þér. Gætir eins haldið að hún væri aðeins gott innlegg í tónverkið — og þú lygnir aftur augunum. KRASSSSSS!!!!!“
Myndir/Unsplash.com
Svo mörg voru þau orð og var blaðamaður nokkuð örlátur þegar kom að upphrópunarmerkjunum í lokin! Enda háalvarlegt mál að leyfa tónlistinni, einkum ef hún er góð, að taka hug manns allan við aksturinn.
Þessu tengt:
Aðrar umfjallanir
FRANKFURT - Volkswagen er að hefja afhendingu á ný á nýja Golf eftir lagfæringu á hugbúnaði, sagði talsmaður VW á fimmtudag...
Allt virðist vera að færast í áttina að hreinni orku sem er oft mishrein þegar grannt er skoðað...
Bifvélavirkinn lausnamiðaði, Hrafn Hamar, betur þekktur sem Krummi á meðal þeirra sem horfðu á Spaugstofuna í gamla daga, átti nóg af ráðum. Ekki voru þau öll góð en þetta hlýtur að virka.
Foreldrarnir bönnuðu honum að kaupa nýtt mótorhjól en samþykktu hins vegar hinn alræmda og valta þriggja hjóla bíl, Reliant Robin! Það var fátt „reliant“ við þann bíl nema kannski að hægt var að treysta á að hann kæmi manni á hvolf og í klandur.