Dacia bætir útilegupakka við Jogger

Dacia Jogger stefnir að því að vera klár í allt sem þú getur gert í útilegu

Við þekkjum öll litlu sendibílana sem þeysast um vegi landsins sem ferðabíla” með svefnplássi, en núna mun Dacia kynna sína lausn á svona bíl, ferðabíl + tjald!

Á sínum tíma í febrúar sagði Lionel Jaillet, varaforseti Dacia fyrir vöruframboð, við Auto Express að fyrirtækið væri að „skoða alls kyns möguleika“, líklega til að innifela bæði húsbíl og atvinnubíl.

image

Dacia Jogger með tjaldið uppsett

Nú hefur Jaillet viðurkennt að sendibílaútgáfa af Jogger sé ólíkleg, þökk sé síhertari reglum um atvinnubíla. En hann hefur staðfest að Jogger Camper sé á leiðinni.

„N1 reglurnar fyrir atvinnubíla verða sífellt flóknari,“ sagði hann, „og við erum ekki í samræmi við þær á Jogger. Þannig að við ætlum ekki að bjóða bílinn sem vinnubíl.

image

Hér sést uppsett tjaldið við Dacia Jogger betur

„Hvað varðar ferðabíl, þá erum við að vinna í því, já. Þetta ætti að koma frekar fljótt. Það er í anda hugmyndafræði okkar - að auka útivistarmöguleikana sem viðskiptavinir okkar geta stundað með bílana okkar. Og Jogger hefur réttan anda til þess“.

„Við höfum ekki ákveðið hvort það verður í gegnum aukabúnað eða sjálfstæða gerð. Við erum að vinna í því eins og er."

Það er líka óljóst hvort bíllinn sem um ræðir muni bjóða upp á svefnaðstöðu eða vera meira dagsferðabíll" með svefnrými og eldunaraðstöðu.

(frétt á Auto Express)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is