Valdi koppasali sjötugur!
„Valdi koppasali fagnar nú 70 ára afmæli og af því tilefni langar hann að bjóða félögum Fornbílaklúbbs Íslands að fagna með sér þessum tímamótum.
Kaffi og rjómaterta verður í boði afmælisbarnsins sem elskar rjómatertur, jafnt sem fornbíla og merkilega hjólkoppa.
Valdi hefði gaman af að sjá sem flesta félaga klúbbsins á sunnudaginn og verður að sjálfsögðu á staðnum, eldhress.“
Mynd af síðu Fornbílaklúbbsins
Svo segir í tilkynningu klúbbsins og verður án efa ánægjulegt fyrir Valda að sjá sem flesta! Við hér á Bílabloggi óskum Valda hjartanlega til hamingju með stórafmælið!
Tengt efni:
Aðrar umfjallanir
INEOS, framleiðandi Grenadier-jeppans, teflir nú fram ökumanni úr Formúlu eitt í auglýsingaherferð. Finninn Valtteri Bottas, sem ekur fyrir Mercedes, sést í splunkunýju myndbandi aka eftir fáförnum vegarslóða á INEOS Grenadier-jeppanum.
Nú liggur fyrir hvaða bíll er „bíll ársins 2020“ í Þýskalandi, en það er hinn nýi PorscheTaycan...
Fyrir sléttum 119 árum settist maður að nafni Tom Fetch upp í 12 hestafla ökutæki og ók af stað frá San Francisco. Hann ætlaði til New York og þangað fór hann. En ökuferðin tók reyndar 61 dag!
Volkswagen hefur fylgt eftir fyrstu afhendingum nýja ID.3 rafbílnum með því að afhjúpa næstu rafknúnu gerðina: ID.4. Hann er kynntur sem fimm sæta rafknúinn...