Elvis, Elias og fallegi bíllinn

Elvis Presley átti það til að tjá vináttu og þakklæti með því að gefa fólki bíla. Ekki blóm heldur bíla. Það er fallegt og sennilega ekki mjög algengt. Í það minnsta hefur maður ekki reynslu af slíku sjálfur. Elvis gaf lækninum sínum m.a. Stutz Blackhawk árgerð 1971 og Mercedes-Benz.

image

Elias Ghanem og Elvis Presley

Elias Ghanem (1939-2001) fluttist frá Palestínu til Bandaríkjanna árið 1963. Hann hlaut styrk til læknanáms við Duke University í Norður Karólínu. Árið 1971 fluttist Elias til Las Vegas og þar byrjaði áhugavert ævintýri. Ævintýri sem margar stórstjörnur blönduðust inn í og þar á meðal sjálfur Elvis Presley.

Bjó í bílnum fyrst í stað

Bílar koma nokkuð við sögu þegar rýnt er í feril læknisins en þegar hann kom til Bandaríkjanna var hann alveg staurblankur. Hann hafði jú hlotið námsstyrkinn en annars var aleigan 90 dollarar sem hann geymdi kuðlaða saman í buxnavasanum.

image

Mynd tekin í kringum 1973 og þarna eru þeir Elias, Elvis og Don Robertson.

Eftir að Elias kynntist Elvis varð auðvelt að njóta þessa lystisemda lífsins því lækninn skorti ekki aur eftir það. Hann var margmilljóner þegar hann dó árið 2001: Átti þotur, glæsihýsi, veitingastaði, bílaflota og ýmislegt sem kostar sitt.

image

Þessi er nú rennilegur. Og þennan bíl áttti læknirinn.

Margt þótti torkennilegt í kringum þennan mann og var hann undir eftirliti alríkislögreglunnar eftir andlát Elvis Presley. Þótti bókhald læknisins eitthvað undarlegt rétt eins og þau lyf sem hann ávísaði í stórum stíl og fólk hrökk upp af standinum allt í kringum hann.

image

Af einhverjum ástæðum var Elias Ghanem með fullt af lyfjum heima hjá sér sem stíluð voru á Elvis Presley. Annar læknir ávísaði lyfjunum en þau voru geymd í læstum skáp á heimili Ghanems. Ekkja Ghanems sagði frá þessum undarlegheitum þann 15. ágúst 2012, daginn sem 35 ár voru frá andláti Presleys.

Aldrei var hann ákærður og þó margt hafi þótt grunsamlegt við Dr. Elias Ghanem er ekki annað hægt að segja en hann hafi komið ár sinni vel fyrir borð. Hann lifði eins og kóngur en dó úr krabbameini árið 2001, þá 62 ára gamall.

Hvað með bílinn?

Jú, þetta var löng saga eða langur inngangur. Kjarni málsins er sá að einn þeirra bíla sem Elvis gaf lækninum er nú á uppboði. Bíllinn sem um ræðir er Stutz Blackhawk árgerð 1971. Pappírar fylgja bílnum sem sýna að þetta er víst bíllinn sem doktorinn fékk frá Elvis.

image

Reyndar keypti Elvis þrjá ef ekki fjóra bíla af þessari gerð en þetta er fyrsti Blackhawk-inn sem var seldur og hann eignaðist Elvis 9. október 1970.

image
image

Í mælaborði bílsins er plata sem eftirfarandi stendur á: „Elias Ghanem/A True Friend/Elvis Presley“.

image

Ekki virðist Elias hafa ekið bílnum mikið því að mælirinn segir 31.856 mílur. Í þessum tiltekna bíl er margt voðalega fínt og spes.

image

Vínskápur, minkafeldur, 24 karata gullskreytingar og ég veit ekki hvað fleira er í bílnum. Jú, það er 7.5 lítra Pontiac V8 vél en í raun fer ákaflega lítið fyrir tæknilegum upplýsingum á síðu uppboðsins. Hér er það helsta en annars segja myndirnar sitt.

image
image
image

Myndir af bílnum eru allar af vef uppboðshaldarans, Mecum Auctions

image
image
image
image

Tengt efni:

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is