Ferskir Frakkar framtíðar og fortíðar
Það er gaman að sjá hvernig bílaframleiðendur á borð við Citroën og Renault sækja innblástur í gamalt fínerí úr fortíðinni. Renault 4 og 5 eru dæmi um það en svo er það Citroën Berlingo sem fær útlitið að hluta til frá 2CV Fourgonnette. Djarft og töff!
Hið nýja útlit Berlingo er kom nú til vegna samstarfs Citroën og Caselani. Bíllinn mun fást í ýmsum útfærslum, til dæmis sem rafbíll. Framleiðsla hefst í janúar 2023.
Skýr skírskotun
Citroën 2CV Fourgonnette AU (U fyrir Utility) var kynntur árið 1951 og framleiddur til 1987. Hann seldist í 1.247.000 eintökum. Berlingo er býsna líkur gamla í útliti og verður gaman að sjá hvernig viðtökurnar verða. Auðvitað er bíllinn nútímalegur í alla staði þótt útlitið sé sótt til fortíðar. Annað væri varla sniðugt.
Öryggis- og tæknibúnaður verður þó ekki úr fortíðinni!
Myndirnar sem hér fylgja eru allar frá Stellantis/Citroën
Fleiri ferskir Frakkar:
Aðrar umfjallanir
Hér deilir Jóhannes Reykdal minningum sínum með lesendum. Á meðal þess sem fjallað er um eru rúðuþurrkur bíla fyrir liðlega 70 árum og kemur gosdrykkurinn dísæti, Coca Cola, meira að segja við sögu.
Riviera er bein tenging við þá frönsku og þýðir strandlengja á okkar ástkæra og ylhýra. Árið er 1965 og Samband íslenskra samvinnufélaga er með umboð fyrir Buick Riviera...
Það gefur auga leið á þessum árstíma þegar veturinn færist nær og dagurinn verður sífellt styttri, að ljósin á bílnum skipta máli...
BMW hönnuðir hyggjast gera miklar breytingar á næstu kynslóð X2 crossover, með hallandi þaki og afturhlera að aftan...