Bílatattú getur verið skondið
„Þú ert það sem þú borðar“ segir málshátturinn gamli og er það gott í sjálfu sér. Annað sem gefur vísbendingu um líf fólks gæti verið tattú eða húðflúr. Það hefur þó ekkert með mat að gera en bílar, mótorhjól og Formúlubrautir eru á meðal þess sem bílafólk hefur látið flúra á hörund sitt.
- 17% þeirra sem hafa látið húðflúra sig segjast sjá eftir því. Algengasta ástæðan: Flúrið er nafn einhverrar annarrar manneskju sem er ekki lengur „uppáhalds“.
- 5% þeirra sem eru óánægð með eigið flúr láta flúra „yfir“ það gamla í stað þess að láta fjarlægja það.
- 5% segjast sannfærð um að flúrið geri þau gáfulegri.
Jæja, gott og vel. Staðhæfingar út í bláinn og ekki vísað í heimildir á síðunni. Skítt með það. Lítum á myndir og höfum það gott. Bílatattú bílafólksins gjörið svo vel:
Svo má alltaf fá sér myndir til að hengja upp á vegg…
Aðrar umfjallanir
Að bjóða vinum sínum upp á skyndibita í Tesla Model S Plaid er í lagi. En bíllinn er 1020 hestöfl og það virkilega gerist eitthvað þegar gefið er í! Þá flýgur matur t.d. út um allt en vonandi þykir eigandanum og sprellikarlinum Alex Choi eins gaman að þrífa og að aka bílnum.
Á næstu tveimur árum mun Peugeot sýna hreinar rafknúnar útgáfur af 308, 308 SW og 408, ásamt tveimur glænýjum rafbílum byggðum á væntanlegum STLA grunni...
Verð á bílum og vörubílum gæti farið hægt og rólega aftur niður á jörðina, en áframhaldandi framboðsskortur hrjáir enn helstu bílaframleiðendur...
Land Rover frumsýndi fimmtu kynslóð Range Rover í beinni útsendingu á netinu í kvöld (þar á meðal í beinu streymi hér á vef Bílabloggs...