PSA-samsteypan kemur með nýjan grunn fyrir rafbíla árið 2023
Peugeot 3008 er nú fáanlegur sem tengitvinnbíll, en næsta kynslóð verður með fullu rafmagni og byggður á nýjum eVMP grunni PSA Group.
PARIS - PSA Group mun kynna nýjan grunn árið 2023 sem er aðlagaður fyrir rafknúin ökutæki og mun nýtast bæði minni og miðlungsstórum gerðum 2023.
„Við erum að undirbúa stefnu okkar fyrir það þegar það eru aðallega rafbílar sem verða seldir“, sagði Tavares og bætti við að framtíðarsýn fyrirtækisins væri að skipta frá því að hafa tvo „fjölorku“-grunna yfir í að hafa tvo sérstaka grunna fyrir rafknúna bíla.
Allir bílar rafknúnir árið 2025
Árið 2025 munu 100 prósent af gerðum PSA vera rafmagnsútgáfur, sagði Tavares. Frá 2025 mun PSA hafa tvo sérstaka grunna fyrir rafknúin ökutæki: eVMP og komandi eCMP, fyrir litla og það sem Tavares kallaði „B-plús“ flokk bíla.
Talsmaður PSA sagði að nýju aðlöguðu rafmagnsgrunnarnir kæmu ekki strax í stað tveggja núverandi grunna samsteypunnar. „Þetta er umskipti frá tveimur fjölorkugrunnum (CMP og EMP2) í tvo grunna sem eru tileinkaðir rafknúnum ökutækjum,“ sagði hún í tölvupósti.
Tavares sagði að ekki væri kominn tími til að taka ákvörðun um hvort eVMP pallurinn yrði notaður til að renna stoðum undir framtíðarfarartæki frá Fiat Chrysler Automobiles, þar sem PSA og FCA hafa ekki enn gengið frá sameiningarsamningi sínum. En hann sagði, „það er alveg ljóst að við trúum á samkeppnishæfni eVMP og á viðeigandi tíma munum við ræða það við hinn hluta fjölskyldunnar.“
Sérfræðingurinn Philippe Houchois hjá Jefferies sagði í tilkynningu til fjárfesta að eVMP grunnurinn væri „verulegur sparnaður fyrir PSA-FCA sameininguna.“
Lágmarka kostnað við þróun og verkfæri
EVMP grunnurinn hefur „framlengt flutning“ frá EMP2-grunninum, sagði PSA, sem hefur haldið þróunarkostnaði í lágmarki og forðast stórfellda endurnýjun á búnaði í verksmiðjum. Tavares sagði að heildarkostnaðurinn næmi „hundruðum milljóna“ evra.
Fyrsti bíllinn á nýja grunninum verður líklega næsta kynslóð 3008, sem forseti Frakklands, Emmanuel Macron, tilkynnti í lok maí yrði smíðaður í verksmiðju PSA í Sochaux í Austur-Frakklandi. PSA fjárfestir um 200 milljónir evra til að undirbúa verksmiðjuna fyrir nýja grunninn.
Tveir af keppinautum PSA Group, Volkswagen Group og Renault Group, hafa einnig nýlega þróað grunn sem er aðlagaður fyrir rafknúin ökutæki. MEB frá VW Group, verður notaður af vörumerkjunum VW, Seat, Skoda og Audi, frá og með VW ID3 í sumar. Samstarfsaðili VW Group í þróun, Ford Motor, mun einnig geta notað útgáfu af grunninum.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Audi RSQ e-tron mun taka þátt í Dakar rallinu 2022 í Saudi-Arabíu, sem hefst í Ha’il í Sádi-Arabíu, og lýkur í Jeddah 12 dögum síðar.
Sunnudaginn 17. janúar 1965 unnu 14 menn mikið þrekvirki, eins og það var orðað í Alþýðublaðinu, þegar þeir komu þremur jeppum upp á Esjuna. Í dag er þetta auðvitað algjörlega bannað eins og allir vita, en þetta var nú á síðustu öld.
Núna er tækifærið því tæplega 800 fótstignir bílar til sölu á einu uppboði í Bandaríkjunum í þessum mánuði – en að vísu bara í „barnastærð“!
Lítið er um fréttir af nýjum bílum þessa dagana, en ýmsar bílavefsíður hafa birt fréttir um að BMW X2...