Cybertruck væntanlegur í árslok 2023
Samkvæmt nýrri frétt ætlar Tesla nú að hefja framleiðslu á Cybertruck fyrir lok árs 2023
Þessi rafdrifni pallbíll, sem hefur seinkað gæti litið dagsins ljós í lok næsta árs.
Samkvæmt nýrri frétt frá Reuters segir að Tesla stefni að því að hefja fulla Cybertruck fjöldaframleiðslu fyrir lok næsta árs. Í alvöru að þessu sinni, eða svo segir fréttin.
Það slær auðveldlega út farartæki eins og Semi og nýja Roadster-bílinn.
Sem sagt, það hefur ekki alltaf verið að marka það þegar kemur að framleiðslumarkmiðum Tesla, svo við verðum efins þar til Cybertruck-bílarnir byrja í raun að rúlla af færibandinu í Austin, Texas.
Mynd að framan af Tesla Cybertruck hugmyndabílnum. - Mynd: Tesla
„Við erum á lokasprettinum fyrir Cybertruck,“ sagði Musk við fjármálasérfræðinga á símafundi.
Samkvæmt frétt Reuters mun hægfara aukning á seinni hluta ársins 2023 ná hámarki í fullri framleiðslu í lok þess árs. Það myndi þýða að fyrirtækið myndi ekki græða peninga á langþráðum Cybertruck fyrr en í fyrsta lagi í byrjun árs 2024.
- Í janúar hafði Musk nefnt skort á íhlutum sem ástæðu fyrir því að ýta markaðssetningu á Cybertruck inn í 2023.
- Í maí hætti Tesla að taka við pöntunum fyrir Cybertruck utan Norður-Ameríku. Musk sagði að fyrirtækið hefði „fleiri pantanir af fyrstu Cybertruck-bílunum en við gætum mögulega uppfyllt í þrjú ár eftir upphaf framleiðslu".
Reuters segir að sumir sérfræðingar vari við því að veikt hagkerfi heimsins gæti farið að hafa neikvæð áhrif á sölu Tesla.
Musk hefur sjálfur sagt að komandi samdráttur muni vara fram á vorið 2024.
Það er ekki eina baráttan sem Cybertruck mun standa frammi fyrir. Bíllinn hefur nú mun sterkari samkeppni en fyrir nokkrum árum síðan. Þegar hann kemur í framleiðslu í lok næsta árs mun Cybertruck þurfa að mæta Ford F-150 Lightning, Chevrolet Silverado EV, GMC Hummer EV, Rivian R1T og væntanlegum GMC Sierra EV.
Fleira tengt Cybertruck:
Aðrar umfjallanir
Það hefur verið helsti ókosturinn við þessar sjálfskiptingar að beltið eða reimin þolir illa mikið álag þegar tekið er af stað með vél sem hefur mikið tog...
Að taka sumarbílinn út og aka fyrsta rúntinn er sérstök seremónía. Því fylgir alltaf spenna enda eru sumarbílar flestra fornbílar og þeir gjarnan hafðir í geymslu yfir veturinn. Þess vegna er spennan nokkur þegar aldraðir herramenn eru gangsettir.
Nico Rosberg keppti í ralli í fyrsta skipti fyrir skemmstu. Hann sýndi mögnuð svipbrigði og sagði að þetta væri heldur betur sport sem kallað gæti fram hræðslu hjá hugrökkustu mönnum. Mun óhuggulegra en Formúla 1!
Nýr BMW iX1 rafknúinn crossover mun birtast á næsta ári og vera við hliðina á bensínknúnum X1 í framboði fyrirtækisins...