Meira um CVT skiptingar
Það hefur verið helsti ókosturinn við þessar sjálfskiptingar að beltið eða reimin þolir illa mikið álag þegar tekið er af stað með vél sem hefur mikið tog við lágann snúning og sérstaklega ef það er tekið skart af stað. Þetta getur valdið ótímabæru sliti.
Toyota kom með lausn á þessu vandamáli 2018 með CVT skiptingu sem er kölluð Direct Shift-CVT og er með það sem er kallað Launch Gear. En skiptingin er frábrugðin öðrum CVT sjálfskiptingum að í henni er upphafsgír eða fyrsti gír sem er tannhjólagír svipað og í beinskiptum gírkassa. Við u.þ.b. 40 km hraða skiptir sjálfskiptingin sér úr þessum gír og við tekur stálreimin.
Skiptir sér 20% hraðar af því að hallinn eða hornið á reiminni var minnkað úr 11 gráðum í 9 gráður.
Með tilkomu upphafsgírsins minnkar álagið á stálreiminni. Svörun skiptingarinnar er betri með minni trissu og það er 40% minni tregða eða mótstaða í henni.
Það er væntanlega ekki hægt að kalla þessa CVT sjálfskiptingu stiglausa?
Hægt er að lesa meira um þessa sjálfskiptingu hér.
Aðrar umfjallanir
DETROIT - Hummer er kominn aftur og með sex stafa verðmiða. Fyrir 112.595 dollara í Bandaríkjunum (samsvarar 15.637.193 ISK) kemur GMC Hummer Edition 1 sem...
Barn að aldri heillaðist ég af bíl. Bíl sem minnti dálítið á nestisbox - en það var nú ekki það sem heillaði mig (að hann líktist nestisboxi). Þetta var Renault 5...
Bílaframleiðandinn Volvo sem í hugum margra er enn sænskur, er í raun í meirihlutaeigu Zhejiang Geely Holding Group í Kína...
Nú liggur fyrir hvaða bílar keppa um titilinn “bíll ársins 2021 á Íslandi”, en Bandalag Íslenskra Bílablaðamanna (BÍBB) hefur tilkynnt hvaða bílar komust í úrslit...