Svona fór bifreiðaskoðun fram árið 1937
Prúðbúnir menn með skrifblokkir og penna á lofti, tjakkar og hin ýmsu verkfæri í notkun og allt utandyra! Já, þannig var þetta nú í fyrndinni. Hér á landi voru þúsundir ökutækja skoðaðar á litlu steyptu plani við Bifreiðaeftirlit Ríkisins í Borgartúni. Sama hvernig viðraði!
Reyndar voru menn ekki endilega í sínu fínasta pússi í versta veðrinu úti á planinu í Borgartúninu, heldur klæddust þeir oftast brúnum sloppum og báru gjarnan kaskeiti á höfði, eins og Jóhannes Reykdal lýsti svo skemmtilega í grein sem við birtum í sumar.
Í Noregi, nánar tiltekið í Osló, voru starfsmenn bifreiðaeftirlitsins vel til fara, eins og sjá má í þessu myndbandi sem unnið er upp úr efni frá 1937. Takið eftir hversu rólegir allir virðast og sömuleiðis hversu vel þeir eru til fara. Svo eru einhverjir með slaufu í stað slifsis og auðvitað er hatturinn á sínum stað þar sem það á við!
Þessu tengt á einhvern hátt:
Aðrar umfjallanir
Mazda fagnar 15 árum hjá Brimborg með veglegum afmælistilboðum til 30. júní. Mazda bílar hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi og eru þeir í sérflokki...
Það er ekki að undra að maður spyrji! Jafngildir það ekki að aka með lokuð augu að slá inn skilaboð á messengerinn á 96 kílmótra hraða á...
Skrítnar skrúfur, skrúfuskortur og lausar skrúfur! Mannfólkið er til í ýmsum útgáfum og ekki alltaf hægt að grípa skrúfjárnið og herða þegar skrúfur eru lausar í fólki. Hér er áhugaverð saga af stúlku sem varð ill út í Chevrolet Impala ´67.
Í dag ætlum við að hoppa til baka í tíma hér á vefnum og birta eina frétt sem skrifuð þá og þótti merkileg - árið er 1997...