Rafdrifinn Porsche Boxter myndaður
Porsche staðfesti fyrir heiminum fyrr á þessu ári að 718 Boxster og Cayman séu að verða rafknúnir um miðjan þennan áratug.
Í dag birtust „njósnamyndir“ af frumgerð rafmagns Boxster í fyrsta sinn á bílavefsíðum, sem sanna tilvist þessa væntanlega rafbíls.
Ljósmyndararnir segja að þeir hafi náð myndunum af rafknúnum Boxster á prófunarbraut og tiltekinn prófunarbíll sem tekinn var virðist vera tiltölulega snemmbúin frumgerð.
Hjólhaf hans og heildarlengd líta nú þegar út fyrir að vera stærri en núverandi kynslóð bílsins.
Það gæti vel verið í viðleitni til að koma nógu stórum rafhlöðupakka í bílinn.
Þrátt fyrir útlitið gæti verið einhver blekking í gangi hér í formi tilbúinna framlenginga, sem hylja hið raunverulega form og hönnun fram- og afturstuðara.
(vefsíður Auto Express og Autoblog)
Aðrar umfjallanir
Rúmlega tvítugur náungi, sem hefur verið nafngreindur í fjölmiðlum vestra, ók á tvær einkaþotur og eldsneytisbíl á Love Field flugvellinum í Dallas á laugardaginn.
Nýliðna helgi héldu Landrover eigendur sína árlegu sumarhátíð í Húnaveri. Það var margt um manninn og margt...
Muna lesendur eftir Teslunni sem bílakarlar breyttu „dálítið“ og settu í hana V8 vél úr Camaro SS? Þessi fyrsta V8 Tesla heims er ekki komin á haugana eða eitthvað álíka heldur hefur hún farið víða síðustu mánuðina.
Uppúr 1950 þegar VW fór að flytja Rúgbrauðið yfir til Bandaríkjanna fór það náttla ekki framhjá Kananum. Um miðjan fimmta áratuginn hófu bandarísku bílaframleiðendurnir Ford...