Jay Leno hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsinu
Búist er við að grínistinn og bílaáhugamaðurinn nái sér að fullu af brunasárunum
Eins og við sögðum frá slasaðist Jay Leno á dögunum. Hinn þekkti bílaáhugamaður og stjórnandi Jay Leno's Garage og fyrrverandi stjórnandi The Tonight Show, hlaut alvarleg brunasár á andliti og hálsi sunnudaginn 13. nóvember þegar hann reyndi að gera við stíflaða eldsneytisleiðslu á hvíta gufubílnum sínum.
Samkvæmt fyrri fréttum var Jay Leno að vinna við 115 ára gömlum gufubíl þegar eldur kom upp.
Grínistinn Jay Leno er hér með starfsfólki sjúkrahússins þegar hann var útskrifaður eftir meðferð við brunasárum. Mynd: Grossman Burn Center
„Jay vill láta alla vita hversu þakklátur hann er fyrir umönnunina sem hann fékk og er mjög þakklátur fyrir allar velfarnaðaróskir,“ sagði sjúkrahúsið í yfirlýsingu.
(frétt á vef Jalopnik)
Aðrar umfjallanir
Ljósmyndarar AutoExpress hafa náð næstu langbaksgerð eða stationgerð Volkswagen Golf á mynd, að þessu sinni ásamt Alltrack...
Nú eru liðin rúm 20 ár frá því að fyrsti Santa Fe jepplingurinn kom, sá og sigraði. Það er ekki ofsögum sagt að að Hyundai Santa Fe hafi verið í hópi...
Þessa dagana eru margir að huga að því að skipta frá sumardekkjum yfir á vetrardekk. Margir bíleigendur hafa valið að vera all áríð á svonefndum...
Við fjölluðum um nýjasta útspil VW – ID.Buzz sem kynntur var nýlega sem fólksbíll og sendibíll, og það er greinilegt að bíllinn fær...