Fiat lofar að halda áfram að búa til smábíla á rafbílaöld
Ítalska merkið ætlar að vera staðfast og halda sig nærri rótum sínum.
Engar breytingar verða á stefnu Fiat að framleiða áfram minni bíla og ætlar fyrritækið þess í stað að auka rafmagnsframboð sitt. Þó að margir framleiðendur séu að hætta við borgarbíla og hlaðbaks-bíla í þágu crossover-bíla, telur Fiat að enn séu fullt af tækifærum í stærðarflokki lítilla og minni bíla.
Hið fræga ítalska vörumerki hyggst setja á markað fimm nýjar gerðir á næstu fimm árum, með vísbendingu um að allir verði þeir bílar í A og B stærðarflokki. Til viðmiðunar vísar A-hlutinn til lítilla borgarbíla eins og 500e á meðan B-hlutinn tengist bílum í hlaðbaksgerð eins og Peugeot e-208.
Næsti rafbíll Fiat verður lítill hlaðbakur sem situr fyrir ofan 500e. Í kjölfarið kemur svo framleiðsluútgáfan af Centoventi Concept 2019.
Fiat 500e mun koma í sölu í Bandaríkjunum árið 2024. Núverandi 500e fáanlegur í Evrópu, er knúinn af annað hvort 23,8 kWh eða 42 kWh rafhlöðupakka. Sá síðarnefndi er fær um allt að 320 km á hleðslu (WLTP) og 0-60 mílur (0-96,5 km/klst) km/klst á um 8 sekúndum.
(frétt á vef INSIDEEVs)
Aðrar umfjallanir
Ef það er eitthvað sem við eigum nóg af hér á landi eru það holur. Holur sem við viljum ekki aka í en ökum því miður oft í, enda eru þær á vegum landsins. En við erum ekki ein um að vera rík í þessum skilningi. Holur í vegum eru víða!
Fer það betur með sjálfskiptinguna að skipta í hlutlausan á umferðarljósum en að leyfa bílnum að malla í „drive“ meðan beðið er eftir grænu ljósi? Það er sannarlega góð spurning en Bílablogg fékk þessa klassísku spurningu frá einum lesanda. Lítum nánar á málin!
Ef maður opnar heimasíðu Brimborgar þá birtist manni stór mynd af Ford Bronco með myndatextanum „Goðsögnin glæsilega snýr aftur“...
Þessa dagana er hin mikla snekkja A, eða „Sailing Yacht A“ eins og hún heitir fullu nafni, á Vestfjörðum. Þetta er stórmerkilegt far og gaman að góna á það. Undirrituð glápti alla vega góða stund og kom svo aftur til að horfa aðeins meira.