Nýr Volvo coupe-sportjeppi mun leiða næstu kynslóð rafbíla vörumerkisins
• Volvo skipuleggur nýtt úrval af rennilegri coupe-sportjeppum í endurskoðun framboðs á rafbílum og breski bílavefurinn Auto Express sýnir okkur hvernig þeir gætu litið út
Robin Page, aðstoðarframkvæmdastjóri hönnunar Volvo, sagði Auto Express að samhliða áherslu fyrirtækisins á rafvæðingu muni framtíðargerð Volvo vera mjög frábrugðin því sem við sjáum í dag.
Endurskoða hvað bílar eru
„Að færa sig yfir í rafvæðingu gefur okkur tækifæri til að endurskoða hvað bílar eru. Við erum opnari fyrir því að endurtaka ekki bara það sem við höfum gert áður heldur skoðum líka tækifæri bæði í stærri og minni bílum, “útskýrði Page. „Sem hönnunarteymi erum við alltaf að skoða það sem augljóst er, og auðvitað með rafknúnum ökutækjum færir það okkur tækifæri og áskoranir hvað varðar loftaflfræði og jafnvægi við þarfir fólks hvað varðar pláss“.
„Hvernig lítur heimurinn út þegar þú ert með fólk sem vill hafa þessa háu stöðu og allt notagildi sportjeppa, í jafnvægi við þá staðreynd að þeir vilja aksturssvið? Hrein loftaflfræði“.
Myndin, sem Auto Express fékk einkaleyfi á að birta gefur hugmynd um hvernig bílar Volvo gætu litið út í framtíðinni, í samræmi við jeppaeiginleikana sem kaupendur krefjast, ásamt sléttari hlutföllum til að bæta loftfræðilega skilvirkni og auka aksturssviðið.
(byggt á grein á Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Febrúarmánuður er frægur hér á landi. Frægur fyrir veður sem er eflaust með því versta í heimi sé mið tekið af höfðatölu. Svo vont var veðrið í febrúar bæði 1981 og 1991 að bílar tókust á loft og Engihjallinn í Kópavogi varð frægur. Þá var nefnilega „fokið í flest skjól“ í orðsins fyllstu.
2020 Cadillac CT5 – lúxusfólksbíll í millistærð kynntur, og það er nægt turbóafl til staðar, en hin raunverulega frumsýning verður á alþjóðlegu bílasýningunni í New York í næsta mánuði.
Porsche er ekki að láta hömlulausa útbreiðslu á kórónaveiru eyðileggja það að koma fram...
Nýja, þriðja kynslóð Honda HR-V verður afhjúpuð eftir mánuð, eða þann 18. febrúar sem rafdrifinn crossover til að keppa við bíla á borð við Ford Puma og Nissan Juke...