VW skráir e-Beetle sem vörumerki. Er “bjallan” að koma aftur sem rafbíll?
Volkswagen kvaddi ekki fyrir svo löngu gömlu góðu „bjölluna“. Á síðasta ári sagði VW að fyrirtækið hefði engin áform um að koma aftur með hana sem rafknúið farartæki, en nú gæti nýtt vörumerki í Evrópu sagt annað.
Bílavefurinn TorqueReport segir frá því að búið sé að sækja um vörumerki sem gefi undir fótinn með þetta.
Einn meðlimanna á vettvangi VW ID Talk hefur uppgötvað að VW hefur sent inn vörumerkisumsóknir fyrir nokkur sígild nöfn, en með „e“ fremst, sem myndi merkja að þau séu fyrir rafknúin ökutæki. VW var ekki aðeins með vörumerki e-Beetle, heldur einnig vörumerki e-Karmann og jafnvel e-Golf Classic.
Núna hefur VW aðeins skuldbundið sig til að koma einum EV með „gömlu“ eða „retro“-þema á markaðinn, en það er gamla góða „rúgbrauðið“ eða Id.Buzz, en gæti rafbílsútgáfa að bjöllunni líka verið í pípunum? VW hefur ekki sagt neitt svo í bili verðum við bara að bíða og sjá.
Aðrar umfjallanir
Miklar umræðu hafa skapast á rafbílaspjallsíðum síðustu daga eftir að í ljós kom að rafbíllinn bZ4X kom ekki vel út úr rafbílaprófunum...
Stundum eru góðar fréttir í heiminum og í dag er ein slík á ferðinni: Búist er við að stjórn Volkswagen samþykki á miðvikudag áætlun...
Eistum ber sannarlega að hrósa: Þeim tókst að búa til fyndinn og fallegan rafbíl. Bíl sem fær fólk til að brosa. Ekki af því að bíllinn sé eitthvað asnalegur – heldur vegna þess að hann virkar skemmtilegur og vekur kátínu. Lítum nánar á gripinn.
Ný og gjörbreytt kynslóð hins vinsæla Renault Megane er væntanleg til BL í júní og eru forpantanir þegar hafnar. Ekki aðeins hefur Megane verið endurhannaður frá grunni...