Ending heddpakkninga
Nýlega birti Consumer Report (CR) skýrslu þar sem fjallað er um bíla sem líklegt er að skipta þurfi um heddpakkningu í, og hvaða bílar gætu komið í staðinn fyrir þá eins og sjá má hér.
Það er ekki víst að allir þessir bílar fyrirfinnist á Íslandi en CR eru Amerísk samtök. Eins vantar þá væntanlega í þetta bíla sem eru ekki seldir í Ameríku.
Á myndinni er dæmigerð hedd- eða strokklokspakkning.
Stálþynnan á myndinni hér fyrir ofan er þéttingin á milli vélarblokkarinnar og strokkloksins. Á henni eru þéttingar í kringum göng fyrir kælivökva og olíu en líka í kringum strokkana. Þetta er góð hönnun sem getur enst hundruð þúsunda kílómetra ef viðhaldi er sinnt, réttir vökvar notaðir og vélin ofhitnar ekki. En þetta gildir greinilega ekki um alla bíla, jafnvel sum „fínu“ merkin eru með vélar sem „sprengja“ heddpakkningu löngu áður en ætla skyldi. Endingin er ekki nógu góð eins og CR hefur komist að.
Hver borgar svo brúsann? Líklega ekki bílaframleiðendurnir.
Aðrar umfjallanir
Það hefur verið staðfest að Ford Mondeo saloon verður tekinn úr framleiðslu í áföngum fyrir mars 2022 og Ford vísar til breyttrar eftirspurnar...
Það er í það minnsta ljóst að maðurinn á myndinni hefur gott skopskyn því aðferð hans við að húkka sér far er sprenghlægileg!
Bílasýningar helgarinnar voru vel sóttar bæði hjá Toyota í Kauptúni en þar var jeppasýning og BL á Sævarhöfða sem frumsýnir MG EHS tengitvinnbílinn...
Sumir safna númeraplötum, aðrir frímerkjum, enn aðrir punktum „á ökuskírteinið“ og svo eru þeir til sem safna ökuskírteinum. Ökuskírteinum fræga fólksins. Þau hafa nefnilega nokkur ratað á uppboð en oftast er um að ræða skírteini látinna einstaklinga þó til séu dæmi um hið gagnstæða.