Fegurðin afhjúpuð
Hann var frumsýndur í dag, bíllinn sem sópað hefur að sér verðlaunum undanfarið. Þetta er auðvitað VW ID.Buzz, nýjasti meðlimurinn í rafbílafjölskyldu Volkswagen.
Það eru reyndar nákvæmlega sömu tölur og ID.4 bíllinn hefur til að bera.
ID.Buzz Cargo sennilega er laglegasti sendibíllinn í bænum.
Hér er einn alveg sniðinn fyrir leigubílstjóra. Fullur af sætum fyrir farþega.
Litadýrð
Það eru hvorki meira né minna en ellefu litir í boði – og þarf fjórir tvítóna. Þú getur síðan valið um lúkk á felgum í mismunandi stærðum.
ID.Buzz Pro er ansi vel búinn bíll í grunninn. Litasamsetningin er alveg dásamleg á þessum bílum.
Hér er afi gamli við hliðina á ungviðinu.
Vel búinn í grunninn
Standard innrétting bílsins er afskaplega vel frá gengin – hún er svört og hentar allstaðar við öll tilefni. Þeir sem eru litaglaðir og vilja krydda aðeins upp á lífið með litum eru Style innréttingarnar til í bláu, gulu, orange og grænu.
Hönnunin er ótrúlega vel heppnuð. Þægileg sæti sem framleidd eru með vistvænu áklæði.
Hér er nú aldieilis hægt að hlaða farangri.
Að auki er hægt að fá Premium innréttingu í sömu litasamsetningu en hún kostar þrjúhundruð þúsund krónur aukalega. Þá erum við að tala um 30 lita Ambient innri lýsingu, armhvílu á báðum framsætum, Art Velours ECO áklæði og teppalagt innanrými svo eitthvað sé nefnt.
Hér rifjast eflaust upp minningar því margir muna gamla „rúgbrauðið" að innan.
Þú hakar bara við
Í vefsýningarsalnum getur þú síðan raðað þeim búnaði sem þú vilt í óskabílinn. Fyrir tæpa hálfa milljón í viðbót getur þú fengið rafdrifin framsæti með mjóbaksstuðningi og minnisstillingum í ökumannssaæti.
Þá er líka stillanlegur hiti í framsætum.
Þessi bíll er með framlenginu á setu - sem er mjög þægilegur aukabúnaður ef maður ekur langar vegalengdir í einu.
Assistance Plus pakkinn kostar tæpar tvöhundruð þúsund krónur í dag en í honum er Park Assist Plus bílastæðaaðstoð með minnisstillingu, blindhornaviðvörun og 360° myndavél.
Fjölbreytt notagildi í mismunandi útfærslum
Fleiri pakkar eru í boði sem hægt er að bæta við en sá sem okkur fannst hvað mest spennandi er Open og Close Pakki Plus.
Svo er bara púsla sætunum saman svo henti hverju sinni.
Þetta er svo einfalt. Þú velur og smellir svo á panta – og þeir hringja í þig þegar bíllinn er tilbúinn til afhendingar.
Volkswagen, eins og aðrir bílaframleiðendur hafa ekki farið varhluta af íhlutavöntun sem hefur tafið framleiðslu og afhendingu bíla talsvert.
Ef þú pantar ID.Buzz í dag gætir þú verið að fá hann á vordögum 2023 eða jafnvel fyrr.
Aðrar umfjallanir
Hér er ein skemmtileg frátt fyrir þá sem hafa áhuga á mótorhjólum – og þá ef þau eru sérstök!...
Áttatíu ár eru ansi stór áfangi hjá öllum og þegar Jeep vörumerkið náði þessum stóra 80 ára áfanga árið 2021 var augljóst að sérstök útgáfa nú eða tvær væri...
Er erfitt að muna á hvorri hlið bílsins bensínlokið er? Fyrir flesta ökumenn er það ekki erfitt en svo eru þeir inn á milli sem lífsins ómögulega geta munað þetta. Það er nú allt í lagi. En þessi stúlka hér á í vandræðum með eitthvað.
Jeep hefur tilkynnt um uppfærslur á 2023 Jeep Cherokee