Kia Niro hreppir Gullna stýrið

Nýi Kia Niro rafbíllinn hlaut hið virta Gullna stýri, sem almennt er talið mikilvægasta viðurkenning sem bílum getur hlotnast í Þýskalandi.

Kia Niro, sem hlaut mikið lof þegar hann var kynntur til sögunnar fyrr á þessu ári, fékk Gullna stýrið 2022 í flokki lítilla SUV-bíla, þar sem samkeppnin er geysihörð. Tengiltvinnbíllinn Kia Sportage hafnaði í öðru sæti. Þessi tvöfaldi sigur sýnir svart á hvítu hve öfluga stöðu Kia hefur í einum vinsælasta bílaflokki Evrópu. Volkswagen Taigo hafnaði í þriðja sæti.

image

Niro rafbíllinn, Sportage Plug-in Hybrid og EV6 GT voru meðal 47 nýrra bíla í alls sjö flokkum sem ritstjórnir þýsku tímaritanna AUTO BILD og Bild am SONNTAG tilnefndu.

Lesendur völdu þrjá úrslitabíla úr hverjum flokki áður en 21 manns dómnefnd sérfræðinga prófaði hvern bíl ítarlega í lokaumferð keppninnar á DEKRA Lausitzring-kappakstursbrautinni í Þýskalandi, þar sem sigurvegararnir voru valdir.

Jason Jeong, forstjóri Kia Europe, sagði: „Kia heldur áfram að auka úrval rafbíla sem sameina sparneytni, mikið akstursdrægi og stíl. Fjölbreytt úrval rafbíla frá okkar kemur vel í ljós í Gullna stýrinu í ár, þar sem við sýnum enn og aftur að við erum í sérflokki þegar kemur að rafvæðingu.

Gullna stýrið sem Niro hlaut í ár er það þriðja á síðustu fjórum árum sem fallið hefur Kia í skaut. Kia Sorento hlaut heiðurinn árið 2020 þegar hann varð hlutskarpastur í flokki stórra SUV-bíla og Kia XCeed vann árið 2019 í flokki bíla undir 35.000 evrum.

Í mars fékk Kia EV6 aðalverðlaun hinna virtu Red Dot-hönnunarverðlauna fyrir árið 2022, þökk sé byltingarkenndri og framsækinni hönnun bílsins. Rafknúni lúxussportjeppinn var einnig sigursælastur í flokki „vörunýjunga“. Auk þess var EV6 valinn bíll ársins í Evrópu 2022, bíll ársins í Premium-flokki í Þýskalandi 2022, bíll ársins á Írlandi 2022, bíll ársins í Bretlandi 2022 og lúxussportjeppi ársins á Topgear.com-verðlaununum 2021.  

Rafbílalína og góð sala

Kia ætlar að halda áfram að auka framboð rafbíla og er markmiðið að 14 gerðir Kia-rafbíla verði komnar á markað árið 2027, þar á meðal ný lína lítilla og meðalstórra rafbíla frá og með 2025. Áætlun fyrirtækisins fyrir árið 2030 er að selja 4 milljónir bíla árlega, þar af 1,2 milljónir rafbíla.

Þetta var á sama tíma og 9,9% samdráttur varð á fólksbílamarkaði í Evrópusambandinu.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is