Porsche 911 tekst á við hæsta eldfjall í heimi
Porsche 911 er nú þegar talinn einn besti bíllinn til að keyra hratt á sérstökum hraðakstursbrautum og nú er Porsche að sýna okkur hversu fær hann er þegar vegurinn er ekki lengur til staðar og bara torfærur fram undan.
Það má segja að aðstæðurnar hjá Romain Dumas og félögum hans þarna á eldfjallinu í Chile minni á það þegar Benedikt Eyjólfsson, Benni í Bílabúð Benna „núverandi umboðsmaður Porsche á Íslandi", ásamt sínu liði kom jeppa upp á efsta tind Öræfajökuls um árið.
Liðinu var stýrt af þolaksturskappanum og ævintýramanninum Romain Dumas, sem ætlaði að kanna takmörk 911-bílsins. Liðið náði næstum 20.000 feta hæð og ferðaðist um svæði þar sem hitinn fór niður í -30 gráður á Celcius.
Ófærir brattar af marglaga snjó og ís hátt uppi nálægt tindinum komu í veg fyrir að liðið klifraði lengra.
Undir lokin var færðin orðin erfið og loks var ekki lengra komist
„Þetta var sannarlega eftirminnilegt og sérstakt augnablik á stað sem er bæði fallegur og grimmur á sama tíma - ég býst við að einu farartækin í heiminum hærra en við í dag hafi verið flugvélar! Fyrir liðið og bílinn snýst þetta um að læra – og það sýndi sig að bíllinn er sterkur og lipur.
„Við berum gríðarlega virðingu fyrir þeim sem hafa farið hærra.
Enginn okkar hefur séð jafn mikinn ís og snjó upp að toppi eldfjallsins, en þrátt fyrir það fórum við í yfir 6.000 metra hæð, að þeim stað þar sem brattar með ís og snjó þýddu að við gátum ekki farið lengra.
Komnir í yfir 6.000 metra hæð.
Fyrir þetta ævintýri breytti Porsche ekki aflrásinni, þannig að báðir bílarnir voru knúnir sömu 443 hestafla forþjöppu flatri-sex strokka vél og sjö gíra beinskiptingu sem er í venjulegum Carrera 4S.
Bílarnir tveir voru búnir veltibúrum og sætum úr koltrefjum.
Til að takast á við erfitt landslag var öxlum breytt og bætt við til að auka í veghæð í 350 mm, torfæruhjólbarða og Aramid trefja undirvagnsvörn. Báðir bílarnir fengu einnig lægri gírhlutföll til að bæta viðbragð aflrásarinnar á lágum hraða.
Hér eru svo nokkrar myndir frá leiðangrinum, sem sýna að aðstæðurnar á fjallinu voru alls ekki ólíkar því sem gerist hér á landi.
(grein á vef TORQUE REPORT)
Aðrar umfjallanir
Ef svo er hefur Legó kynnt splunkunýjan Ghostbusters legó bíl sem er byggður bílnum úr myndinni Ghostbusters frá 1984...
Öll þekkjum vörumerkið Samsung – aðallega fyrir sjónvörp og farsíma, en núna gæti okkur staðið til boða að aka um á bíl frá Samsung...
Subaru hefur afhjúpað Solterra STI hugmyndabíl á bílasýningunni í Tókýó í ár – Tokyo Auto Salon, sem gefur kynningu á því sem gæti verið framleiðsluútgáfa af sportlegum...
Það er auðvitað eðli skúrka að vera óttalegir skúrkar og því ætti nú ekki að kippa sér upp við að bílaþjófar steli bílum. Hér segir frá einum sérdeilis óprúttnum bílaþjófi sem beið ekki boðanna þegar eigandi ákveðinnar Corvettu hrökk upp af standinum…