Nissan kynnir rafvædda X-Trail og Qashqai með nýrri tækni
BL við Sævarhöfða kynnir á laugardag, 25. mars milli 12 og 16, nýja Nissan X-Trail og Qashqai með nýju rafdrifnu aflrásinni e-Power sem Nissan þróaði fyrir jepplinga auk þess sem endurhannaður og enn rúmbetri X-Trail hefur fengið fjórhjóladrifstæknina e-4ORCE sem Nissan þróaði einnig frá grunni.
X-Trail og Qashqai fá aflrásina e-Power
Nýja e-Power aflrásin, sem Nissan hefur þróað fyrir X-Trail og Qashqai, veitir ökumanni og farþegum sömu tilfinningu fyrir eiginleikum og upplifun og þekkist af hljóðlátum akstri rafbíls án þess þó að bílunum þurfi nokkru sinni að stinga í samband við hleðslustöð.
X-Trail með fjórhjóladrifstæknina e-4ORCE
Auk e-Power aflrásarinnar er nýr X-Trail jafnframt búinn nýrri fjórhjóladrifstækni sem nefnist e-4FORCE sem var þróuð sérstaklega fyrir nýjar kynslóðir rafknúinna jepplinga framleiðandans, en auk X-Trail e-Power en nýi rafjepplingurinn Ariya einng búinn sömu tækni.
Framúrskarandi aksturseiginleikar
Tölvubúnaður e-4ORCE stjórnar afköstum rafmótoranna á sjálfstæðan hátt á hverju hjóli fyrir sig í samræmi við akstursskilyrði á hverjum tíma. Þannig dreifir e-4ORCE t.d. toginu jafnt að framan og aftan til að hámarka grip allra dekkja á öllum tímum auk þess sem kerfið stjórnar hemlum bílsins sjálfstætt fyrir hvert hjól til að viðhalda réttri stefnu bílsins á veginum og fyrirbyggja skrik með ófyrirséðum afleiðingum.
Nánari upplýsingar
Á frumsýningu Nissan X-Trail e-Power með aldrifstækninni e-4ORCE og Qashqai e-Power á laugardag milli kl. 12 og 16 verða reynsluakstursbílar til reiðu.
(fréttatilkynning frá BL)
Aðrar umfjallanir
ID3 rafbíllinn frá Volkswagen mun líklega ná söluaukningu eftir að vörumerkið hóf að taka við pöntunum á nýrri grunngerð bílsins...
Byltingarkenndir tímar! Árið er 1960 og breskur sjónvarpsþulur greinir frá mögnuðum staðreyndum úr samtímanum: Konur standast ökupróf, Ford hefur ráðið konur til að aka nýjum bílum úr verksmiðjunni til viðskiptavina. Konur aka jafnvel lögreglubílum. Hér er algjörlega frábær mynd dregin upp af kvenbílstjórum í Englandi árið 1960.https://www.youtube.com/watch?v=HXF2nrkmOEI
Mazda kynnir næstu kynslóð Mazda 3 á bílasýningunni í Los Angeles sem stendur frá 30. nóvember til 10. desember
Stórfurðulegt hvernig allt getur farið í bál og brand á örskotsstundu. Hér gerist það og eldhafið magnast á meðan maður blikkar augunum...