VW ID3 selst nánast eins vel og Golf
ID3 rafbíllinn frá Volkswagen mun líklega ná söluaukningu eftir að vörumerkið hóf að taka við pöntunum á nýrri grunngerð bílsins.
Gert er ráð fyrir að ID3 Pure sé með 330 km akstursvið á rafhlöðunni samkvæmt WLTP prófunarferlinu.
ID3 er fyrsta gerðin úr ID-fjölskyldu rafbíla VW sem aðeins notar rafhlöður.
ID3 lauk árinu 2020 með mikilli sölu eftir að frumsýningu hans var seinkað vegna galla í hugbúnaði. VW hóf afhendingu ID3 í Evrópu í september en án lykilaðgerða eins og App Connect. Vandamálin voru lagfærð í desember.
ID3 var nálægt því að ná VW Golf í desember. Golf var söluhæsti bíll Evrópu í mánuðinum með 29.949 selda bíla, en næsti keppinautur hans var ID3 og seldist hann í 26.987 eintökum, samkvæmt söluskýrslu Automotive News Europe og JATO Dynamics í desember.
Söluhæstu 10 gerðirnar í Evrópu í Desember 2020
Sótt á markaðinn ofan frá
Jafnvel þó bílaframleiðendur eins og Tesla og VW hafi auglýst fjöldamarkaðsbíla sína með lágu verði, komu þeir samt með dýrari útgáfur á markaðinn í byrjun.
Í nóvember gaf Herbert Diess, forstjóri VW Group, vísbendingu um hvers vegna sú var raunin.
Fyrirtæki hans treysti á að bílar fari frá toppi með líkön eins og Porsche Taycan og Audi e-tron til að ná markmiðum sínum um losun koltvísýrings í flotasölu í Evrópu. Að fara af stað með rafknúin ökutæki í flokki smábíla og minni bíla til að draga úr losun koltvísýrings væri óarðbær, sagði Diess.
VW sagðist hafa fengið 68.800 pantanir á ID3 í fyrra, þar af hafa 56.500 einingar verið afhentar viðskiptavinum frá því í september hófst.
Þetta setti ID3 framar Audi e-tron með 47.300 eintök afhent og VW e-Golf með 41.300, sem gerir ID3 að söluhæsta rafbíl hópsins árið 2020.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Nokkrar sögur úr bílaheiminum - og hvers vegna þær eru sumar rangar...
VW Rúgbrauð eru til í svo mörgum útfærslum að maður hefur hugarflugið til að draga upp annað eins úrval og það sem hér hefur verið „fest á filmu“. Þetta er tekið þann 16. apríl á Doheny ströndinni í Kaliforníu þar sem eigendur hippalegra VW koma saman á SoCal hátíðinni.
Opel / Vauxhall vonar að nýr Mokka, núna með vali á rafknúinni drifrás, muni endurheimta fyrri velgengni vörumerkjanna...
Audi heldur áfram að rafvæða sína bíla. A6 frá Audi er nú fáanlegur með drifrás með tengitvinnbúnaði.