Nýr Hyundai Ioniq 5 rafknúinn sportjeppi forkynntur með sláandi hönnun frá hugmyndabíl
- Væntanlegur Ioniq 5 sem verður keppinautur Volkswagen ID.4 er með mörg hönnunarþemu frá Hyundai 45 Concept
Hyundai hefur boðið upp á spennandi forkynningu á nýjum Ioniq 5 rafknúnum sportjeppa. Bíllinn verður fyrsti framleiðslubíllinn frá kóreska merkinu til að nota nýja E-GMP grunninn fyrir rafbíla og bera Ioniq merkið á nýja rafknúna undirmerki fyrirtækisins.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612438815_2363457575868576671_237679586000.jpg)
Bíllinn verður afhjúpaður að fullu í febrúar, en sjá má að framendinn á 45 Concept er hér kominn með áberandi ferköntuðum framljósum, en lág vélarhlífin setur sinn svip á útlitið.
Stórar 20 tommu felgur eru hér, en afturendinn er næstum alveg eins og hugmyndabíllinn frá 2019. Breytingar á útliti á framstuðara og afturstuðara virðast vera einu augljósu breytingarnar.
„Frá og með Ioniq 5 mun lína rafbíla okkar endurskilgreina samband fólks og bíla þeirra og skapa nýjan staðal sem öll hönnun verður byggð á,“ sagði SangYup Lee hönnunarstjóri Hyundai.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612438816_1669935227516526354_238800737000.jpg)
Flestar upplýsingar um tækni bílsins hafa ekki verið kynntar ennþá en Hyundai hefur gefið í skyn hraðhleðslugetu. Tengdu Ioniq 5 í nógu hratt hleðslutæki og hægt er að bæta 100 kílómetrum við akstursviðið á fimm mínútum.
Enn á eftir að staðfesta upplýsingar um afköst og getu en Hyundai Group hefur áður sagt að sambærilega stór rafknúinn jeppi Kia muni vera með akstursvið um 480 km auk tíma á endurhleðslu rafhlöðu undir 20 mínútum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612438817_3714615679509831181_239804297000.jpg)
Á bílasýningunni í Frankfurt 2019 fór SangYup Lee, aðalforstjóri Hyundai og yfirmaður hönnunar, í gegnum innréttingar 45 hugmyndabílsins. Hann minntist á hvernig 1974 Pony Coupe hefði veitt innblástur um smáatriði eins og stafræna tækjabúnaðinn, áklæði og merki og sagði:
(Auto Express)
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1677256807_8275493786984911644_30882711991994010.jpg)
Toyota mun smíða rafbíla í Bandaríkjunum þegar árið 2025 í verksmiðju sinni í Kentucky, sem er nú stærsta framleiðslustöð fyrirtækisins á heimsvísu...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612442709_3224030220445143932_4131442509000.jpg)
Bílgreinasambandið hefur birt tölur yfir bílasöluna á árinu 2019. Af einstökum tegundum þá er Toyota söluhæst, í öðru sæti er Kia og...
![](https://img.bilaskra.is/images/1651682405_3212945455532870215_5308310051131951.jpg)
Er það nú eitthvað merkilegt? Já, það er nefnilega hægara sagt en gert að skipta um olíu og svoleiðis á ID.3.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612439682_6891698749020721190_1104397652000.jpg)
Við höfum áður fjallað um hugmyndabílinn Polestar Precept hér á Bílabloggi, en þá var ekki vitað hvort hann væri á leið í framleiðslu eða ekki...