Mikið um nýjungar á næstunni hjá BL

    • Nýir bílar og fleiri rafbílar bætast í hópinn
    • Nýbúnir að bæta við nýju umboði - MG

Bílaumboðið BL á sér langa sögu í bílaheiminum á Íslandi. Grunnur fyrirtækisins er að árið 1954 Í kjölfar viðskiptasamnings við Sovétríkin var fyrirtækið Bifreiðar og landbúnaðarvélar hf. (B&L) stofnað af Guðmundi Gíslasyni. Fyrstu bílarnir sem hið nýja fyrirtæki flutti inn frá Sovétríkjunum voru 100 stykki af Pobeda. Í kjölfarið komu svo Moskvíts, Rússajeppinn og Volga.

Síðan er mikið vatn runnið til sjávar og eftir ýmsar vendingar kaupir félag í eigu hjónanna Ernu Gísladóttur og Jóns Þórs Gunnarssonar. Ingvar Helgason og B&L og tekur við rekstri þeirra um áramótin 2011/2012. Í kjölfarið eru þau sameinuð undir nafninu BL ehf.

Renault kynnti á dögunum þrjá nýja bíla, sem allir eru með rafmagnsbúnaði: Clio blending, Captur lítinn sportjeppa með tengitvinnbúnaði og Megane stationbíl með tengitvinnbúnaði - nota sértæka e-Tech kerfið frá Renault sem er með tvo rafmótora tengda við gírskiptinguna.

Bílar frá 11 vörumerkjum

Í dag er svo komið að undir „regnhlíf“ BL eru alls bílar frá ellefu mismunandi vörumerkjum: BMW, Mini, Jaguar, Land Rover, Nissan, Renault, Dacia, Subaru, Isuzu, Hyundai og það nýjasta er loks MG, sem bættist í hópinn fyrir nokkrum vikum, og nýr rafbíll frá þeim verður frumsýndur um næstu helgi.

Bakarasveinninn sem fór í bílana

Loftur tók blaðamanni Bílabloggs vel í liðinni viku þegar leitað var frétta. Loftur er reynslumikill í bílaheiminum, er búinn að starfa að markaðsmálum á þessu sviði í mjög mörg ár, og þekkir vel til á þessum vettvangi.

image

Loftur Ágústsson, markaðsstjóri BL.

„Árið fór ágætlega af stað, við náðum að kynna þá bíla sem áætlað var að kynna í byrjun ársins, en síðan skall kórónuveirufaraldurinn á sem breytti miklu.

Við höfum í kjölfarið þurft að gera nýjar áætlanir, sem fela í sér 30% minni sölu, en markaðurinn virðist vera að taka hægt við sér þessa dagana“.

„Við höfum ekki tekið þessar sveiflur á gengi að fullu inn í verðlagningu bíla hjá okkur“, segir Loftur. „Við svona aðstæður reyna flestir að hagræða og taka hluta af hækkununum á sig til hagsbóta fyrir væntanlega kaupendur. Við verðum síðan að bíða og sjá hvernig þessu vindur fram“.

Nýbúnir að bæta við nýju umboði

Við sögðum frá því hér á dögunum að BL hefði hafið innflutning á nýju, en þá um leið gömlu vörumerki, MG. „Já, þetta er mjög spennandi valkostur“, segir Loftur. „Bíllinn, MG ZS EV er fimm manna framhjóladrifinn og ríkulega búinn rafdrifinn sportjeppi sem fáanlegur verður til afhendingar strax í tveimur gerðarútfærslum; Comfort og Luxury.

Verðið hjá BL fyrir nýjan MG ZS EV Comfort verður kr. 3.990.000 og Luxury kr. 4.390.000 sem gerir MG ZS EV mjög samkeppnishæfan hvað varðar verð í sínum stærðarflokki á íslenska markaðnum.

Ísland er eitt 9 Evrópulanda þar sem MG er nú fáanlegur“. Bíllinn verður frumsýndur formlega laugardaginn 27. næstkomandi í nýjum sýningarsala MG við Sævarhöfðann.

image

MG ZS EV, 100% rafknúinn rúmgóður sportjeppi, mættur á markað hér á landi.

image

Nánar um framvinduna á árinu

En til að gera betur grein fyrir framvinduna á árinu fór Loftur lauslega yfir það sem er væntanlegt, og ferð það hér á eftir:

NISSAN

„Við náðum að kynna nýjan Nissan Juke í ársbyrjun, en framvindan er aðeins óljós í bili. Nýr Qashqai átti að koma í árslok, en vegna ástandsins hefur frumsýningu hans verið frestað og sá bíll kemur væntanlega ekki fyrr en í byrjun næsta árs. Í framhaldinu er síðan von á bæði Qashqai og Juke í hybrid-útfærslu en hvenær er ekki ljóst í bili.

RENAULT

Við vorum að frumsýna nýjan og endurhannaðan Clio núna á laugardaginn 2. júní - einn vinsælasta bíl framleiðandans sem fyrst kom fram á sjónarsviðið árið 1990. Nú, fimmtán milljón eintökum síðar kynnir Renault tæknilega fullkomnasta Clio frá upphafi.

MINI

Frá Mini erum við með Cooper SE, sem er 100% rafbíll, ásamt því að Countryman er væntanlegur í haust með „facelift“ og hann kemur með PHEV-tengitvinnútfærslu.

BMW

Frá BMW er sportjeppalínan X1, X3 og X5 öll komin í PHEV-tengitvinnútfærslu, en þar eigum við enn eftir að kynna X1-tengitvinnbílinn formlega.

SUBARU

Frá Subaru erum við með XV og Forester, sem núna er komin með rafmagn líka sem e-Boxer. Þá er Outback sem mun koma alveg nýr á næsta ári.

LAND ROVER

Við erum nýbúnir að frumsýna hinn nýja Defender 110, sem vakið hefur mikla athygli. Fram undan er síðan frumsýning á nýjum Defender 90, styttri gerðinni, og síðar árinu munu koma Discovery Sport tengitvinnútfærslu (PHEV) og einnig Range Rover Evoque og Velar ásamt Defender einnig með tengitvinnútfærslu (PHEV).

ISUZU

Eina nýjungin sem BL kynnir á næstunni frá Isuzu er nýr D-MAX síðar á árinu.

HYUNDAI

Við vorum að kynna einnig nýjan Hyundai i10 um síðustu helgi. Fáir bílar hafa á undaförnum árum notið jafn mikilla vinsælda og Hyundai i10 sem hefur verði einn vinsælasti bíllinn í sínum flokki síðan hann var kynntur í eldri útgáfunni árið 2014.

Loks er það bíllinn sem margir hafa beðið eftir, Hyundai Santa Fe,s em kemur alveg nýr frá grunni, mjög vel búinn og fjölhæfur bíll, en væntanlegar verður hann ekki hér á Íslandi fyrr en á nýju ári“, að sögn Lofts Ágústssonar.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is