Enn einn spennandi frá Hyundai
- Nýr Hyundai Bayon 2021 til að sitja fyrir neðan Kona á sviði sportjeppanna
- Þessi nýi Hyundai Bayon jeppi mun deila fullt af hlutum með i20
Söluhæstu gerðir Hyundai eru sportjeppar og crossover-bílar og nú hefur kóreska vörumerkið opinberað að það ætli að bæta við einum í viðbót í framboði sínu. Auto Express á Bretlandi segir okkur í dag að nýja gerðin, sem kallast Hyundai Bayon, muni koma til Bretlands um mitt ár 2021 sem ný „grunngerð“ í crossover-sviði framleiðandans.
Vefurinn birti í dag myndir af Bayon, sem mun vera byggður á sama grunni og nýjasti i20-bíllinn, svo hann mun sitja fyrir neðan Kona í núverandi línu Hyundai.
Enn á eftir að staðfesta opinberar upplýsingar um nýja bílinn en búist er við því að Bayon deili undirvagni og aflrás með i20. Litli fólksbíllinn er nú með aðeins bensínvélum, 83 hestafla 1,2 lítra fjögurra strokka vél og túrbó 1,0 lítra þriggja strokka mildan tvinnbíl, með annaðhvort 99 hestöfl eða 118 hestöfl.
Kynning á Bayon gefur einnig Hyundai tækifæri til að gera tilraunir með næstu kynslóð Kona því þegar Bayon kemur á markað á næsta ári munu báðir bílarnir berjast um svipaða viðskiptavini.
Þegar Kona verður skipt út eftir um það bil þrjú ár mun sá bíll fara sömu leið og Tucson og Santa Fe og vaxa að stærð fyrir næstu kynslóð. Hyundai vonar að þetta muni bæta úr mestu gagnrýni jeppans: þröngt pláss í aftursætum og lítið farangursrými.
Verður næsta kynslóð Kona aðeins rafknúin?
Hyundai hefur einnig gefið í skyn að möguleiki sé á að næstu kynslóð Kona verði aðeins rafknúin. Fyrirtækið seldi 3.500 eintök af núverandi Kona Electric í Bretlandi á síðasta ári, sem er um 30 prósent af heildarsölutölum bílsins - þannig að viðskiptatilfinningin fyrir slíkri ákvörðun er vissulega sterk.
Að gera Kona að bíl sem eðeins notar rafmagn myndi einnig veita nóg pláss fyrir Bayon í heildaruppstillingu kóreska fyrirtækisins þar sem Bayon notar aðeins bensín, áður en bann ríkisstjórnarinnar í Englandi á bílum með brennsluhreyfla tekur gildi árið 2030.
Andreas-Christoph Hofmann, aðstoðarframkvæmdastjóri markaðssetningar Hyundai, sagði um væntanlegan Bayon og sagði: „Hyundai er þegar mjög sterkt fyrirtæki á evrópska sportjeppamarkaðnum, hvað varðar framboð okkar á gerðum sem og söluárangur okkar.
(frétt á vef Auto Express og öðrum vefmiðlum)
Aðrar umfjallanir
Þann 26. febrúar var flutningabíl ekið inn á brú, nánar tiltekið þá brú sem liggur yfir Charles River í Weston, Massachusetts í Bandaríkjunum. Ekki ók bílstjórinn samt yfir brúna…
Við sögðum frá því hér á vefnum í maí að Volkswagen væri að koma með nýjan lítinn sportjeppa, sem þeir nefna Taigo...
Sjö sæta ID.Buzz hefur sést í vetrarprófunum, svo það er greinilega farið að styttast í þannig útgáfu af bílnum...
Hér er ein frétt fyrir þá sem hafa áhuga á BMW - því myndum af því sem lítur út fyrir að vera næsta kynslóð BMW 2 Series Coupe hefur veið lekið á netið...