Nio í Kína kynnir fyrsta rafbílinn
SHANGHAI - Kínverski rafbílaframleiðandinn Nio kynnti á laugardag sinn fyrsta fólksbíl og horfir til aukinnar hlutdeildar í stærsta bílamarkaði heims.
Nio stefnir að því að auka vörulínu sína til að laða að fleiri viðskiptavini. Á fólksbifreiðamarkaði í Kína eru fólksbifreiðar og nytjabílar sérstaklega um 46 prósent af heildarsölunni.
William Li,stofnandi og forstjóri Nio Inc., afhjúpar ET7 rafbílinn á frumsýningarviðburðií Chengdu í Kína. Mynd REUTERS.
Forstjórinn William Li sagði að nýja rafhlöðutækni Nio muni gefa ET7 akstursdrægni sem er meira en 995 kílómetrar á milli hleðslu.
Upphafsverðið verður 378.000 yuan (58.378 dollarar) fyrir bílinn án rafhlöðupakkans, einn dýrasti hluti rafbílsins, sem síðan er hægt að leigja frá fyrirtækinu. Með rafhlöðupakkanum er byrjunarverðið 448.000 júan (69.185 dollarar).
Li sagði að á ET7 verði búinn radarskynjurum - sem hjálpa bílnum að skynja umhverfi sitt (slíkir skuynjarar eru í sjálfakandi bílum) - til að aðstoða ökumenn, tækni sem Elon Musk, forstjóri Tesla Inc., hefur vísað frá.
Tesla, sem er að selja Model 3 fólksbifreiðar í Sjanghæ, er nýbyrjað að selja Model Y bifreiðarnar á byrjunarverði 339.900 Yuan (52.490 dollara). Sá bíll notar myndavélar til aðstoðar við ökumenn.
Lio er sem stendur að selja þrjá nytjabíla sem smíðaðir eru í bílaverksmiðju í borginni Hefei í Austur-Kína.
(Reuters)
Aðrar umfjallanir
Væri ekki gaman ef sá gamli kæmist í stuð? Ef bílar fortíðarinnar myndu verða rafmagnaðir kostir í framtíðinni? Þetta er ruglingslegt en þannig eru hugmyndir oft fyrst þegar þær banka upp á.
Það var hátíðarstemning hjá BL í dag. Margt var um manninn á frumsýningu hins glænýja rafmagnsbíls Renault Zoe um helgina...
Endurnýjunarhemlun breytir hreyfiorku bílsins í rafmagn til að hlaða rafhlöðuna og auka skilvirkni og nýtingu orkunnar...
Orðrómur er upp um að nokkrir bílaframleiðendur hafi áhuga á að fara í samstarf við Red Bull í Formúlu 1...