MG nýtt bílamerki á Íslandi

MG ZS EV, 100% rafknúinn rúmgóður sportjeppi, mættur með fullt hús öryggisstiga Euro NCAP

image

Nýr rafbíll á samkeppnishæfu verði

MG ZS EV er fimm manna framhjóladrifinn og ríkulega búinn sportjeppi sem fáanlegur verður til afhendingar strax í tveimur gerðarútfærslum; Comfort og Luxury. Kynningarverð BL fyrir nýjan MG ZS EV Comfort verður kr. 3.990.000 og Luxury kr. 4.390.000 sem gerir MG ZS EV þann nýja rafbíl sem fáanlegur er á samkeppnishæfasta [most competitive] verðinu í sínum stærðarflokki á íslenska markaðnum. Ísland er eitt 9 Evrópulanda þar sem MG er nú fáanlegur.

image

Frumsýndur laugardaginn 27. júní

MG ZS EV Comfort og Luxury verða frumsýndir í sýningarsal BL við Sævarhöfða laugardaginn 27. júní milli kl. 12 og 16. Auk sýningarbíla verða reynslubílar til taks fyrir þá sem vilja prófa þennan nýja rafknúna og rúmgóða sportjeppa. Við sama tækifæri verður einnig íslensk heimasíða merkisins tilbúin hjá BL. Þangað til geta áhugasamir kynnt sér bílinn, liti og útfærslur á heimasíðu MG, www.mgmotor.is.

image

Nýjasta rafbílatækni MG ZS EV

Rafbíllinn MG ZS EV er búinn vatnskældri og öflugri 44,5kWh rafhlöðu sem hægt er að hraðhlaða frá 0-80% á aðeins 40 mínútum. Drægi rafhlöðu sportjeppans er 263 kílómetrar samkvæmt WLTP og hentar bíllinn því jafnt til innanbæjarakstur sem ferðalaga utanbæjar.

image

Ísland meðal fyrstu norrænu markaða MG

Matt Lei forstjóri MG Motor Europe, er spenntur fyrir íslenska bílamarkaðnum sem hann segir vera meðal fyrstu norrænu markaðanna til að hefja á ný sölu á MG. „Við erum spennt fyrir því að Ísland skuli nú bætast í hóp þeirra Norðurlanda sem þegar hafa hafið sölu á MG ZS EV, Noregi og Danmörku, og taka þátt í því að endurvekja MG í Evrópu. Við hlökkum því til að kynna MG ZS EV og hátækni sportjeppans fyrir landsmönnum.

Skilaboð okkar til Íslendinga eru þessi: MG hefur snúið aftur og nú með rafbíl á mjög samkeppnishæfu verði,“ segir Matt Lei, forstjóri MG Motor Europe.

Flottur rafbíll sem hentar vel íslenskum aðstæðum

Erna Gísladóttir, forstjóri BL, fagnar jafnframt MG á þessum tímamótum sem ellefta vörumerkisins sem BL hefur umboð fyrir hér á landi: „Við teljum að MG ZS EV sé mjög spennandi valkostur fyrir þá sem velja fremur rafbíl en aðra kosti í samgöngumálum sínum og fjölskyldunnar. MG ZS EV er flottur og umhverfismildur bíll sem hentar mjög vel til ferðalaga hvert á land sem er.

Við hjá BL búum að langri sögu í atvinnugreininni sem nær í raun allt aftur til ársins 1954 og við hlökkum til að hefja nýjan áfanga í rekstri fyrirtækisins 27. júní þegar við frumsýnum rafbílinn MG ZS EV, nýjasta vörumerkið í bílaflóru BL,“ segir Erna Gísladóttir, forstjóri BL.

MG ZS EV með 5 öryggisstjörnur Euro NCAP

MG ZS EV hefur þegar hlotið fullt hús öryggisstiga hjá Euro NCAP og er bíllinn jafnframt fyrsti rafknúni sportjeppinn í sínum stærðarflokki (B segment) sem hlýtur þessa 1. einkunn. Óháða öryggisstofnunin Euro NCAP býr að langri reynslu á sviði margháttaðra öryggisprófana á nýjum bílum og líta neytendur mjög til þeirra einkunna sem stofnunin gefur í kjölfar prófana sinna.

Öryggi MG ZS EV er meira en krafist er

Fimm öryggisstjörnur MG ZS EV eru ekki til vitnis um það að bíllinn hafi aðeins staðist lágmarkskröfur í öryggisprófunum Euro NCAP til að hljóta 1. einkunn, enda býr bíllinn yfir búnaði sem er vel umfram þær lágmarkskröfur sem gerðar eru af hálfu stjórnvalda.

Aðferðafræði Euro NCAP við mat á öryggi bíla og einkunnagjöfum eru í stöðugri þróun í samræmi við stöguga tækniþróun bílaiðnaðarins. Þróun einkunnagjafa Euro NCAP endurspeglast m.a. í því að nú er árekstravörn meðal öryggisbúnaðar sem bílar þurfa að uppfylla til að hljóta 1. einkunn og 5 stjörnur í öryggisprófunum Euro NCAP.

Ökuaðstoð eykur öryggi

Auk árekstravarnar býr sportjeppinn MG ZS EV yfir ýmsum öðrum öryggisbúnaði til aðstoðar ökumanni í umferðinni. Þar á meðal er öryggiskerfið MG Pilot L2+ sem sameinar t.d. virkni gagnvirka hraðastillisins (ACC), akreinavarans (LDW) og sjálfvirka neyðarhemilinn (AEB) sem ber m.a. kennsl á hjólandi og gangandi vegfarendur í umferðinni. Þá er MG ZS EV einnig búinn fjölvirku myndavélakerfi og ratsjá sem greinir mismunandi vegaðstæður af völdum veðurs og bregst við til að tryggja sem öruggastan akstur í umferðinni. Nánari grein verður gerð fyrir öryggisbúnaði og ríkulegum staðalbúnaði MG ZS EV er nær dregur frumsýningu bílsins hjá BL við Sævarhöfða laugardaginn 27. júní.

image

MG framleiddur af 7. stærsta bílaframleiðanda í heimi  

Hið sögufræga breska bifreiðamerki MG var stofnað árið 1924 sem frægt er fyrir sportlega og spennandi bíla á hagstæðu verði. Þrátt fyrir mikla samkeppni á markaðnum náðu þessi klassíski breski sportbíll athygli heimsins, allt frá upphafi, þegar MG 14/28, sem Cecil Kimber hannaði, kom fram á sjónarsviðið, til dagsins í dag með hinum nýja rafknúna sportjeppa, MG ZS EV.

Hið sögufræga bílamerki hefur nú gengið í endurnýjun lífdaga og vex hratt á Evrópumarkaði um þessar mundir með úrvali partískra hlaðbaka (hatchbacks) og sportjeppa (SUV) sem boðnir eru á samkeppnishæfu verði.

Hönnun bíla MG fer fram í Marylebone í Lundúnum og framleiðslan í nýjum og tæknivæddum verksmiðjum sem staðsettar eru í nokkrum löndum. Fólksbílar MG eru í senn hagkvæmir og rúmgóðir og búnir fremstu tækni í samræmi við nútímaþarfir elmennings. Samþætting evrópskrar verkfræði og nýjustu tækni rafbíla MG felur því í sér nýtt og spennandi tækifæri til að velja nýjan kost.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is