Nýr Porsche Cayenne GTS kemur með 454 hestafla vél
Nýi Porsche Cayenne GTS er með lægri stöðu til að bæta meðhöndlun í akstri en 4,0 lítra tveggja túrbó V8 er með 454 hestöfl og 620Nm togi
Sem fyrr smellur GTS gerðin í bilið milli Cayenne S og Cayenne Turbo, með nýjum undirvagni og fjöðrunaríhlutum til að aðgreina hann á virkan hátt.
Stærsta breytingin er þó drifrás bílsins. Þó að fyrri Cayenne GTS notaði túrbó 3,6 lítra tveggja túrbó V6, þá er þessi nýji GTS með 4,0 lítra tvískipta túrbó V8. Afl er 454 hö - aukning um 20 hö – meðan talan um togið læðist upp um 20 Nm, að hámarki 620 Nm.
Porsche fullyrðir að með valfrjálsa „Sport Chrono“ pakka Cayenne GTS nái bíllinn hröðun frá 0-100 km/klst á 4,5 sekúndum og fari í topphraða 277 km/klst. Drif er sent til fjögurra hjóla í gegnum Porsche Tiptronic S átta gíra sjálfskiptingu.
Frekari valmöguleikar undirvagnsins eru kolefnis-keramikhemlar, aðlöguð þriggja hólfa loftfjöðrun, beygjur á afturhjólum og „Porsche Dynamic Chassis Control“ stöðugleikastýring, til að halda bílnum enn frekar í skefjum.
Sjónrænt er að allir GTS gerðir eru með Sport Design pakka sem staðalbúnað, þar á meðal glans-svarta klæðningu að utan, glans svartar 21 tommu felgur og dekkt LED-aðal- og afturljós.
Valfrjálst sportútblásturskerfi er með einnig tvö, miðsvæðis sporöskjulaga púströr - nokkuð sem er eingöngu fyrir GTS í bili. Að innan fær nýja gerðin Alcantara snyrtingu í loftklæðningu, miðju sætis, armpúða í miðju og hurðum
Aðrar umfjallanir
Það er oft gott að bera saman umferðarmenningu ólíkra landa og svæða. Svo hagar til hér á Spáni sem blaðamaður bílabloggs dvelur þessa dagana að hann er staddur í litlum strandbæ...
Mercedes-Benz og bandaríski rafbílaframleiðandinn Rivian hafa komist að samkomulagi um að vinna saman að því að framleiða stóra, hreina rafknúna sendibíla. Stefnan miðar að því að draga úr þróunar- og framleiðslukostnaði fyrir bæði fyrirtækin með fyrstu gerðum sem verða búnar til frá samstarfinu sem hefst árið 2025.
Þótt þrír mánuðir séu enn þar til að bílasýningin í Genf opni dyr sínar fyrir gestum í byrjun mars á næsta ári, þá eru þegar...
Samkvæmt fréttum á vefnum hafði Peugeot ætlað að smíða um 10 prósent af nýja 208-bílnum sínum með rafhlöðuorku, en snemmbær eftirspurn eftir rafbílnum sem kallaður er e-208