Glæsileg Jeep og RAM sýning
ÍSBAND umboðsaðili JEEP og RAM á Íslandi býður til stórglæsilegrar jeppa- og pallbílasýningar laugardaginn 6. júní.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612441299_5765053991073090075_2721964115000.jpg)
Sýndir verða óbreyttir og breyttir Jeep jeppar og RAM pallbílar. Jeep Grand Cherokee verður m.a. sýndur með 33” og 35” breytingum og Jeep Wrangler Rubicon verður sýndur með 35”, 37” og 40” breytingum.
RAM pallbílar verða til sýnis með 37” og 40” breytingum.
Þjónustuverkstæði ÍSBAND sérhæfir sig í breytingum á Jeep og RAM, en ÍSBAND er með umboð fyrir hin virtu amerísku breytingar fyrirtæki AEV, sem sérhæfir sig í breytingum á RAM og TeraFlex, sem sérhæfir sig í breytingum á Jeep.
Rjúkandi heitt Lavaza kaffi verður á könnunni og gos og snakk frá Ölgerðinni og Danól. Sýningin er í sýningarsal ÍSBAND í Þverholti 6 Mosfellsbæ og er opin á milli kl. 12-16.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1613204769_1910770705293542672_19785226000.jpg)
FRANKFURT - Volkswagen Group og Microsoft eru að víkka út samstarf sitt með skýjatækni bandaríska hugbúnaðarrisans...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612438683_5178838497768075964_105317673000.jpg)
Það var hátíðarbragur í nokkrum af helstu bílaumboðunum í dag. Við hjá Bílablogg.is ákvaðum að taka hús á nokkrum sem voru að frumsýna...
![](https://img.bilaskra.is/images/1644421205_7395466902362674758_812978488420513.jpg)
„The snow must go on,“ segja þeir í Austurríki sem svellkaldir halda árlega GP Ice Race og hafa gert í rúm 40 ár. Viðburðurinn hefur laðað að um 10.000 gesti en í fyrra og í ár voru engir áhorfendur á staðnum. Þetta var bara á netinu. Fúlt en ekki eins kalt samt…
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443743_3982300084830278772_5165166869000.jpg)
Talið að um 37 milljónir bíla með um 50 milljón gallaða loftpúða falli undir þessa innköllun í heild í heiminum.