Smá fróðleikur um hemlavökva
Flestir gera sér grein fyrir því að hemlavökvi flytur orku frá fótstigi til hjólanna og smyr hemlakerfið í leiðinni. Hann þarf að virka við allar aðstæður; bæði í miklu frosti og miklum hita.
Nú innihalda flestir hemlavökvar glycol-ether/borate ester en með einni undantekningu. Það er DOT 5.0 hemlavökvi sem inniheldur sílikon, en hann er hannaður fyrir aðstæður þar sem er mikill raki og vatn.
Athyglisvert er að DOT 5.1 hemlavökvi inniheldur glycol-ether/borate ester sem uppistöðu ólíkt DOT 5.0 vökvanum.
Suðumark hemlavökva.
Suðumark hemlavökva er prófað þegar hann er þurr (0% vatnsmettun) og votur (3,7% vatnsmettun). Eins og sést á myndinni fyrir ofan þá skiptir miklu máli hve mettaður vökvinn er af vatni. Þegar hemlavökvi er prófaður á bílaverkstæði er notaður mælir sem mælir rafleiðni í hemlavökvanum, sem gefur til kynna hversu mengaður hann er af vatni.
Eðlissegja hemlavökva.
Þykktin á hemlavökvanum eða eðlissegjan (kinetic viscosity) er mæld við 100°C en þá er vökvinn þunnur sem vatn og -40°C en þá getur hann verið seigur eins og hunang.
ABS hemlakerfi þarf að vera með réttum vökva sem er ekki of seigur í frosti.
ABS.
Það er hægt að blanda saman sumum hemlavökvum en það er ekki ráðlegt.
Best er að verða sér úti um réttan hemlavökva í tæka tíð frekar en að hella einhverjum afgöngum í forðabúrið.
Hér er einn möguleiki til að komast að því hvernig hemlavökvi er á þínum bíl ásamt öllum hinum vökvunum.
Aðrar umfjallanir
Nýi litli sportjeppinn Volvo EX30 gæti endað með 68kWh rafhlöðu frá Smart, sem þýðir drægni upp á um 400 km...
SEOUL - Hyundai Motor, sem áður horfði til annarra orkugjafa fyrir utan rafmagn, svo sem vetnis, hefur fylgst með uppgangi Tesla...
Dodge Ram er auglýstur grimmt vestanhafs þessa dagana. Nýjasta slagorðið er: „Ram er fyrir risa og þá sem trúa á þá“ en ekki veit maður nákvæmlega hver markhópurinn er. Hávaxnir? Tröll?
Rafmagn eða ekki, G-Class var óvenjuleg innkoma í Mercedes-Benz línuna og bílaiðnaðinn í heild sinni, með nútímalegri hönnun á upphaflega bílnum frá 1970, smíðaður með yfirbyggingu á grind með heilum öxlum og loforð um meiri torfærugetu - en flestir eigendur myndu þora að prófa.