Hyundai flýtir fyrir þróun rafbíla til að mæta Tesla

image

Rafbíllinn Kona frá Hyundai varð að lúta í lægra haldi fyrir Tesla Model 3 í síðasta mánuði á markaði í Suður-Kóreu.

SEOUL - Hyundai Motor, sem áður horfði til annarra orkugjafa fyrir utan rafmagn, svo sem vetnis, hefur fylgst með uppgangi Tesla, þar á meðal á heimavígstöðvum. Núna er Hyundai að fara að auka sókn sína á rafhlöðudrifnum markaði þar sem bandaríski framleiðandinn hefur haft forystu á sviði rafbíla.

Tilgangurinn með viðræðunum, sem kynntar voru opinberlega, var að Hyundai myndi reyna að festa rafhlöður á tímum þar sem framboð var mikið þar sem kapphlaupið um rafbíla magnast, samkvæmt nokkrum heimildum iðnaðarins.

image

Þessir framleiðendur sjá einnig um framleiðslu á rafhlöðum fyrir aðra framleiðendur bíla, þar á meðal Tesla, Volkswagen Group og General Motors.

Hyundai sagði við Reuters að fyrirtækið væri í samstarfi við kóreska rafhlöðuframleiðendur „til að auka rafbílaframleiðslu sína á skilvirkan hátt. Hyundai neitaði að tjá sig um áform um að taka upp sérstaka framleiðslulínu.

Talsmenn Samsung, LG og SK neituðu einnig að tjá sig.

Áhyggjur vegna Tesla Model 3

Háttsettur innherji í Hyundai, sem vildi ekki koma fram undir nafni vegna þess hve málið er viðkvæmt, sagði að Hyundai hefði ekki haft áhyggjur af Tesla þegar fyrirtækið í Silicon Valley var að framleiða bíla fyrir dýrari hluta markaðarins.

En það varð meiri áhyggjuefni þegar Tesla kom fram með hinn hagkvæmari Model 3 bíl árið 2017, samkvæmt innherjanum sem lýsti því sem „stefnumótandi sigri.“

image

Enginn hefðbundinn bílaframleiðandi hefur náð góðum árangri enn sem komið er í að ná Tesla, sem heldur áfram að vera í fremsta flokki hvað varðar rafhlöðu- og hugbúnaðartækni.

„Við erum ekki á móti framleiðslu rafbíla. Kodak varð gjaldþrota vegna þess að það festist í filmunni þegar iðnaðurinn var að færast yfir í stafræna ljósmyndun,“ sagði talsmaður stéttarfélagsins Kwon Oh-kook við Reuters.

„Við viljum bara vernda störf félaga okkar,“ sagði hann.

Vetnisbílar á móti rafbílum

Árið 2010 bjó Hyundai til 230 rafmagnsbíla fyrir stjórnvöld, en þeir enduðu svo að þeir voru settir í varanlega geymslu í rannsóknarmiðstöð fyrir utan Seoul vegna skorts á hleðslustöðvum, að sögn Lee Hyun-soon, yfirmanns rannsókna og þróunar á þeim tíma.

Ásamt Toyota og Nikola var Hyundai einn af fáum bílaframleiðendum sem hafa stutt vetnisbíla. Fyrirtækið kom fram með fyrsta fjöldaframleidda vetnisbíl iðnaðarins, Tucson vetnisbílinn, árið 2013 og Nexo árið 2018.

image

Tæknin hefur þó ekki náð flugi. Aðeins 7.707 vetniseldsneytisbílar voru seldir á heimsvísu í fyrra samanborið við 1,68 milljónir rafbíla samkvæmt LMC Automotive.

„Hyundai bjóst ekki við að Tesla myndi ráða yfir rafbílamarkaðnum svo hratt,“ sagði annar einstaklingur, sem þekkir til þess sem er að gerast innan fyrirtækisins, við Reuters.

Hyundai Motor er með markaðsvirði um 25,3 billjónir kóreskra won (um 21,2 milljarða dollara) – sem er minna en tíundi hluti af Tesla, sem nú er talinn verðmætasti bílaframleiðandi heims.

Peter Hasenkamp, varaforseti sprotafyrirtækisins Lucid, sem er á sviði raftækni, sem áður starfaði hjá Tesla og Ford, sagði að rótgrónir bílaframleiðendur stæðu frammi fyrir sögulegri „tregðu“ til að takast á við breytinguna yfir í rafbíla.

„Hluti af ástæðunni fyrir því að við erum í Silicon Valley er að nýta bæði hugbúnað og sérfræðiþekkingu í rafmagnsverkfræði,“ sagði Hasenkamp við Reuters. „Það hefur tekið nokkrar kynslóðir fyrir stóru bílafyrirtækin til að læra virkilega hvernig á að gera þetta vel. Það er miklu erfiðara en þeir héldu að það væri.“

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is