Hekla endar árið á toppnum!
- Hekla bætir við sig hlutdeild og heldur toppstöðu sinni í sölu vistvænna bifreiða
- Hekla endaði árið á toppnum í fjölda seldra fólksbíla til einstaklinga og fyrirtækja með tæplega 20% markaðshlutdeild
- Þrátt fyrir samdrátt í heildarsölu bifreiða árið 2020 jókst sala á nýskráðum fólksbílum til einstaklinga um 10%. Í nýskráningum fólksbíla til bílaleiga dróst sala saman eða um 58%
- Rafbílar eru í fyrsta skipti vinsælasti orkugjafinn
- Ríflega 250% aukning er í skráningu hreinna rafbíla á milli ára
26,4% vistvænna bíla
Samtals seldi Hekla 26,4% allra vistvænna bifreiða ársins 2020 en til vistvænna bifreiða teljast hreinir rafmagnsbílar, tengitvinnbílar og metanknúnir bílar. Samtals er Hekla með 19% allra seldra hreinna rafmagnsbíla ársins 2020 og 35% allra seldra tengitvinnbíla ársins. Þá komu 90% af metanknúnu bílum ársins frá Heklu.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612438885_2484998358396158538_307528579000.jpg)
Mitsubishi Outlander PHEV.
Hjá Heklu voru seldar 1963 bifreiðar á árinu. Tengitvinnbíllinn Mitsubishi Outlander Phev var vinsælastur, rafmagnsbíllinn bíllinn Audi e-tron í öðru sæti og í því þriðja var Volkswagen Golf, sem fæst í fjölmörgum mismunandi drifrásum, en vinsælastir eru þeir vistvænu. Hástökkvari ársins hjá Heklu er vafalaust rafmagnsbíllinn Volkswagen ID.3 sem var frumsýndur í september og náði fimmta sæti yfir flesta skráða Heklubíla ársins.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612438886_3239793934157011716_308324679000.jpg)
Audi e-tron.
Gott gengi Audi e-tron
Rafmagnsbíllinn Audi e-tron sló heldur betur í gegn á árinu og sló met ársins á undan með 63% fleiri selda bíla á árinu 2020 en á árinu áður ásamt því að Audi tvöfaldaði markaðshlutdeild sína milli ára. 84% af nýskráðum Audi bílum hjá Heklu voru hreinir rafbílar. Mitsubishi seldi 18% fleiri bíla á nýliðnu ári en árið 2019 og er Mitsubishi Outlander Phev áfram vinsælasti tengiltvinnbíll ársins 2020 og hefur hann haldið því sæti allt frá árinu 2016. Alls voru 26,8% allra seldra tengiltvinnbíla á nýliðnu ári af þeirri gerð.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612438887_5202618622274765399_309424366000.jpg)
Næst stærsta bílaumboðið
Hekla endaði árið sem næst stærsta bílaumboð landsins í fjölda nýskráningum eða með um 19% af öllum nýskráðum fólks- og sendibílum. Þá var desembermánuður einkar sterkur hjá umboðinu með 21% allra nýskráðra bifreiða skráða hjá Heklu og tæplega 25% allra nýskráðra fólksbíla til einstaklinga þann mánuðinn.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612438888_4937810658880089362_310603315000.jpg)
„Við hjá Heklu erum afar þakklát fyrir ánægjuleg samskipti á liðnu ári og það traust sem viðskiptavinir Heklu hafa sýnt okkur. Fram undan er nýtt og spennandi ár fullt af áskorunum,“ segir Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu.
„Ég er einkar stoltur af starfsfólki Heklu sem hefur staðið þetta fordæmalausa ár af sér með frábærum árangri á öllum sviðum. Árið hefur breytt starfsháttum til frambúðar og fram undan er áframhaldandi vinna í að nálgast framtíðina enn frekar með nýjum og spennandi lausnum. Við eigum von á fjölmörgum nýjum og vistvænum bílum til landsins á árinu og mun meðal annars sala á rafbílunum Skoda Enyaq, Volkswagen ID.4 og Audi Q4 hefjast fljótlega.
Síðasta haust voru tímamót í sögu Volkswagen samsteypunnar þegar fyrsti rafbíllinn hannaður frá grunni var afhentur hér á Laugaveginum nokkrum áratugum eftir Volkswagen Bjallan var afhent á sama stað og markaði svipuð tímamót.“
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612438889_4365956542018393653_311710052000.jpg)
Volkswagen Bjalla og ID.3 tilbúnir til afhendingar fyrir framan höfuðstöðvar Heklu á Laugaveginum með nokkurra áratuga millibili.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443678_7197310754034594752_5100316496000.jpg)
Volkswagen vörumerkið mun auka á sýnileika sinn í ört vaxandi hlutdeild lítilla sportjeppa í Evrópu með blæjuútgáfu af T-Roc.
![](https://img.bilaskra.is/images/1635172805_1886213650427801437_2747405329592166.jpg)
Eftir nýlega opnun tveggja nýrra hraðhleðslustöðva nær hleðslunet Tesla yfir allan hringveginn, eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Tesla.
![](https://img.bilaskra.is/images/1652816413_5998723112021193413_6442317702338288.jpg)
Aftur er ökubarn í fréttum. Í dag er það 7 ára gamall drengur sem fór á jepplingi fjölskyldunnar út í umferðina því hann ætlaði að kaupa sér ískrap. Það þurfti umferðareyju og marga bíla til að hægja ferðina á bílstjóranum unga.
![](https://img.bilaskra.is/images/1647988806_2626564336326713656_1614711321837534.jpg)
Hér deilir Jóhannes Reykdal minningum sínum með lesendum. Á meðal þess sem fjallað er um eru rúðuþurrkur bíla fyrir liðlega 70 árum og kemur gosdrykkurinn dísæti, Coca Cola, meira að segja við sögu.