Hér er alvöru Bronco!
- Maxlider Brothers er fyrirtæki sem gerir hvað sem er með Bronco. Frá einfaldri þjónustu til algerrar uppbyggingar. Og nú: enn fullkomnari útgáfa af sex hjóla torfærubíl sem verður svipuð AMG G63 6X6 frá 2013
Jon Winding-Sørensen hjá BilNorge-vefsíðunni kemur oft með frásagnir af „öðru vísi“ bílum, og í dag er það um sérsmíðaða útgáfu af Ford Bronco -sem myndi sóma sér vel á okkar fjallaslóðum.
En gefum honum orðið: „6x6 gerðir eru öflugar. Við sáum þetta vel með 6x6 útgáfu af Benz-jeppanum AMG af G 63 - það var greinilegt.
En það kom fljótt í ljós að jafnvel það gat verið tekið enn lengra. Brabus kom með sína útgáfu. Sá bíll leit út fyrir að vera enn öflugari og 32 tommu felgur og 700 hestöfl staðfestu það frekar.
En það liggja ekki fyrir neinar tæknilýsingar á þessum „fótósjoppaða“ Bronco frá Maxlider Brothers. En þeim hlýtur að hafa dottið eitthvað í hug, því þeir segja að verðið verði 399.000 dollarar (um 50 milljónir ISK). En hvað þú færð fyrir þessa upphæð höfum við ekki hugmynd um enn þá.
Ekkert nema að þetta lítur stórt og þungt út“.
Stór dekk og hækkuð fjöðrun
Og hann heldur áfram: „En við sjáum stór Goodrich dekk, þar á meðal ytra varadekk. Við sjáum fjöðrun sem hefur verið hækkuð, við sjáum breiðari brettakanta og þakboga með nægum ljósum til að lýsa upp hálfan frumskóginn.
Kemur Ranger líka?
Vitað er að fyrirtækið er líka að horfa til Ford Ranger, og þar sem við vitum að næsti T6 Ranger verður á sama grunni og Bronco, getum við líklega treyst á einhver útgáfa af sexhjóla pallbíl komi þaðan líka .
Vinnustofa bræðranna er staðsett í Bloomington, skammt frá Chicago – í venjulegu sveitaumhverfi.
Bakgrunnur fyrirtækisins er svolítið frumlegur því bræðurnir tveir, Erik og Kris, gáfust upp á því að fá plötusamning fyrir rokkhljómsveitina sína og því var pakkað saman árið 2005.
Síðan stofnuðu þeir internet / upplýsingatæknifyrirtæki sem gekk svo vel að þau gátu unnið að Bronco áhugamálinu sínu sem gekk síðan svo vel að þau gætu búið til verkstæði úr áhugamálinu.
(frétt á vef BilNorge – myndir frá Maxlider Brothers)
Aðrar umfjallanir
Dekk sem leggja upp í ferðalag án bíls geta verið ferlega varasöm. Þessi maður hér í meðfylgjandi myndbandi hefur ábyggilega andstyggð á dekkjum sem fara á flakk eftir þessa sérstöku reynslu.
Þeir geta sannarlega komið eigendum á óvart, bévítans bílarnir! Í vikuskammti bifvélavirkjanna vestanhafs er eitt og annað kúnstugt að vanda, t.d. bíll sem er vel sviðinn en eigandinn sagðist hafa áttað sig á brunanum vegna fjölda öskrandi vegfarenda.
Í Bandaríkjunum er hlutdeild bíla sem aðeins nota rafhlöður yfirgnæfandi af bandarískum gerðum
Tokyo Auto Salon sem opnar í næstu viku er einn stærsti viðburðurinn í heimi bílabreytinga og sérsmíði og er haldin árlega í janúar...