Dodge WC57 sem gæti hafa verið bíll Pattons á leið á uppboð

    • Vandinn er sá að það veit enginn hvort þetta er rétti bíllinn
    • Að minnsta kosti gæti þessi bíll sem var áður á safni verið bíll herforingja í seinni heimsstyrjöldinni

image

Þessi Dodge WC57 gæti hafa tilheyrt Patton hershöfðingja

Margir sem eru komnir á miðjan aldur vita eflaust hver George S. Patton var. En fyrir hina þá var Patton hershöfðingi í her Bandaríkjamanna á vígstöðvunum í Evrópu í seinni heimstyrjöldinni. Patton þótti litríkur mjög og fór ekki alltaf alveg eftir regluverki hersins. Hann lést eftir alvarlegt bílslys í Þýskalandi 21. desember 1945 og voru uppi sögusagnir að honum hafi verið ráðinn bani, en það var aldrei sannað.

Núna er einmitt „bíll Pattons“ kominn aftur í fréttirnar því í sumar á að fara bjóða upp einn svona bíl sem uppboðshaldarar staðhæfa að sé einmitt bíll Pattons.

image

Eitt af því sem Patton lét breyta sínum WC57 var að setja „aukahlera að aftan sem var búinnverkfærum.

image

Meðal „aukahluta“ sem Patton lét setja á bílinn voru svona öflugar flautur svo hann gæti aðra vita hver væri á ferð!

En aðrir segja líka að þetta „gæti verið“ bíll hershöfðingjans fræga vegna þess að þótt þessi WC57 hafi komið frá „National Military History Center“ í Auburn í Indiana, fyrir nokkrum árum og er búinn þeim breytingum sem Patton lét gera á sínum persónulega WC57, þá er uppboðshúsið ekki með neina pappíra sem sérstaklega tengja Patton við þennan bíl, og það eru aðrar eftirlíkingar af Patton „Command Cars“ til í Bandaríkjunum.

Það gæti hjálpað til við að útskýra hvers vegna þegar uppboðsfyrirtækið RM Auctions setti þennan WC57 í sölu árið 2017 voru væntingar um sölu á 100.000 til 150.000 dollara, þá tókst ökutækinu ekki að ná lágmarkinu sem var 60.000 dollarar.

En nánar um Dodge WC57

Dodge hafði verið að búa til farartæki fyrir Bandaríkjaher síðan fyrir fyrri heimsstyrjöldina, flestir byggðir á borgaralegum gerðum.

Áður en Bandaríkin fóru í seinni heimsstyrjöldina, breytti Dodge borgaralegum TC-pallbíl sínum í VC-1 herbílinn árið 1940.

VC-1 þróaðist fljótt í WC-gerð, WC57 Command and Reconnaissance Weapons Carrier var smíðaður á þriggja fjórðungs tonns, 4x4 undirvagni og vegur næstum 2.450 kg. Þeir voru smíðaðir frá 1942 til 1945 og voru knúnir af T214 vél með hliðarventlum frá Dodge, 230 rúmtommu sex strokka línuvél með 92 hestöflum.

image

Vélin var 92 hestafla sex strokka línuvél með hliðarventlum.

WC57 var einfaldur bíll, áreiðanlegur, dugmikill og í stríðslokin varð þessi bíll grunnurinn að Dodge Power Wagon.

Sagan er sú að hermenn, sem sneru aftur frá herþjónustu hafi einfaldlega beðið Dodge um borgaralega útgáfu af þessum nánast ósigrandi herbíl, svo að Dodge svaraði með einum öflugasta pallbíl eftirstríðsáranna árið 1946 – Dodge Power Wagon.

image

WC57-bíllinn var einfaldur en sterkbyggður og þótt úrvals „herbíll“.

Vinsæll meðal bandarískra liðsforingja

Opin gerð WC57-bílsins var einnig vinsæl hjá yfirmönnum í Bandaríkjaher og vegna þess var bíllinn vinsælt skotmark fyrir þýska fótgönguliða og flugmenn Luftwaffe. Þannig að Patton, áður en hann hélt til Frakklands 1944 með þriðja hernum, lét hann bílaverkstæði hersins í Cheltenham á Englandi breyta sínum WC57. Verkstæðið bætti við brynjuhlíf til að verja vatnskassann, hálfrar tommu brynvörn undir gólfinu og Browning M2 .50 vélbyssu til að bægja loftárásum frá. Auka niðurfellanlegur hleri að aftan gaf aukið pláss og lokaða tækjageymslu.

Fánar og mjög öflugar flautur á frambrettinu gáfu til kynna stöðu og stjórn Pattons, og sérstakt grip fyrir aftan framsætin gaf Patton festu fyrir hendur þegar hann stóð til að ávarpa hermenn sína.

Uppboðsbifreiðin er frábrugðin þessum breytingum, kannski vegna óhjákvæmilegra breytinga, viðhalds og endurnýjunar eftir stríðið. Bíllinn er búinn Browning M1919 A44 .30-cal vélbyssu á stigbrettinu farþegamegin, og það er annar frágangur verkfæra á afturhleranum.

image

Á myndunum hér að ofan má sjá Patton í WC57-bílnum við tvö tækifæri. Á myndinni til vinstri er hann með frönskum hershöfðingja eftir að átökunum lauk í Norður-Afríku, en á myndinni til hægri á ótilgreindum stað í Evrópu.

image

En hvort sem þetta er bíll Pattons eða ekki þá mun uppboðið fara fram hjá Worldwide Auctioneers dagana 11. - 14. júní á Kruse Plaza í Auburn í Indiana í Bandaríkjunum..

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is