NÝR PEUGEOT 100% HREINN RAFBÍLL FRUMSÝNDUR LAUGARDAGINN 15. FEBRÚAR

Brimborg frumsýnir glænýjan Peugeot e-208 100% hreinan rafbíl með 340 km drægni og engri CO2 losun. Peugeot e-208 rafbíll er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél og 260 Nm togkrafti. Með  þessu afli kemst Peugeot e-208  frá 0 upp í 100 á 8,1 sekúndu. Glænýr undirvagn Peugeot e-208 er hannaður með innbyggðri 50 kwh rafhlöðu svo að innra rýmið er jafnstórt og í hefðbundnum Peugeot 208.  Peugeot e-208 rafbíll er með fimm ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.

image
image

340 KM DRÆGNI Á 100 % RAFMAGNI, EINFÖLD OG HRÖÐ HLEÐSLA

Peugeot e-208 100% rafbíll er með 50 kWh rafhlöðu og drægni hennar skv. WLTP mælingu er 340 km. Rafhlaðan er staðsett undir miðjum bílnum og hefur því ekki áhrif á farþega- og skottrými. Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Peugeot e-208 rafbíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum.  

image

Hægt er að fullhlaða á 7,5 klst í öflugri heimahleðslustöð eða í 80% hleðslu á aðeins 30 mínútum í 100 kW hraðhleðslustöð.

image

Peugeot ábyrgist 70% hleðslugetu rafhlöðunnar í 8 ár eða 160.000 km. Einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyPeugeot® appinu ásamt því að stilla forhitarann svo bíllinn  sé heitur og fínn áður en lagt er af stað.

ÓMÓTSTÆÐILEG HÖNNUN OG NÆSTA KYNSLÓÐ AF TÆKNI

Hönnun nýja Peugeot e-208 hefur hlotið einróma lof fyrir ómótstæðilega hönnun og ríkulegan staðalbúnað. Að innan er nútímaleg i-Cockpit innrétting í lykilhlutverki með nýjustu kynslóð af tækni og stafrænu 3D mælaborði þar sem allar upplýsingar eru í sjónlínu ökumanns.

image

FULLKOMIN ÖRYGGISTÆKNI

Peugeot e-208 100% rafbíllinn er með nýjustu aksturs- og öryggistækni sem aðstoða ökumann við aksturinn og tryggir örugga ökuferð. Veglínuskynjun, blindpunktsaðvörun, vegskiltalesari, aðlögunarhæfur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun (Active City Break) og ný gerð bakkmyndavélar eru dæmi um öryggisbúnað í rafbílnum Peugeot e-208.

image

Sala rafbíla hefur farið vaxandi víða um heim og því verður takmarkað magn í boði á Íslandi en Brimborg hefur tryggt ákveðinn fjölda bíla sem eru nú til sölu í nýjum vefsýningarsal á brimborg.is. en forsalan hefur farið feikivel af stað. Nú eru fyrstu bílar komnir á lager og eru þeir fáanlegir í  þremur útfærslum.

image

Peugeot e-208 100% rafbíll kostar frá 3.790.000 kr. Nánari upplýsingar er á finna á vef Peugeot á Íslandi eða hjá sölustjóra Peugeot á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur @Benný Ósk Harðardóttir eða í síma 5157802

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is