Nýr Mercedes Vision AMG hugmyndabíll kynntur sem rafbíll
Þessi nýi bíll verður frumsýndur 19. maí
Samkvæmt frétt á vef Autoblog tilkynnti Mercedes-AMG nýlega að fyrirtækið væri að þróa undirvagn fyrir afkastamikla rafbíla. Gordon Wagener, aðalhönnuður Mercedes-Benz, hefur sent frá sér skissu sem gæti verið einn þeirra rafhlöðuknúnu bíla sem munu byggja á þessum undirvagni.
Hönnuðurinn birti mynd á Instagram, sem sýnir útlínur hugmyndabíls sem kallast Vision AMG. Autoblog segir: „Við freistumst til að segja að við séum að horfa á coupe; það kæmi okkur á óvart ef þetta væri fjögurra dyra fólksbíll en vitlausari hlutir hafa gerst.“
„Það sem er öruggt er að skuggamyndin er með þau hlutföll sem við tengjum venjulega við ofurbíl: stuttan framenda, hallandi framrúðu og langan afturenda. Fyrst minnst er á það þá minnir afturendinn á EQXX hugmyndabílinn sem bendir til þess að loftaflsfræði hafi átt stóran þátt í mótun bílsins.“
Svo mörg voru orð þeirra á Autoblog.
Ekki búast við að finna miðstýrða vél undir málmyfirborðinu. Lítið er um opinberar upplýsingar, en Wagener merkti Vision AMG greinilega sem „alrafmagnaðan sýningarbíl“.
Ekki er áætlað að undirvagninn fari í framleiðslu fyrr en 2025, svo Mercedes-AMG hefur tíma til að fínstilla drifrás hugmyndabílsins - að því gefnu að hann sé á leið í framleiðslu, sem hefur ekki verið staðfest. Þetta gæti aðeins verið hönnunarrannsókn.
Enn er of snemmt að segja til um hvað mun aðgreina rafknúna undirvagn AMG frá þeim sem Mercedes-Benz notar. Allar upplýsingar munu koma í ljós þann 19. maí, þegar undirvagninn og Vision AMG hugmyndabíllinn verða frumsýndir.
Aðrar umfjallanir
Síðasti kubburinn rataði á sinn stað í gær og þar með var hann tilbúinn: Stærsti Formúlu 1 Legobíll í heimi.
DETROIT- Nýja útgáfan af Jeep Grand Cherokee 4xe, sem núna er einnig kominn sem tengitvinnbíll mun bjóða um 65 km rafmagnsdrægni...
Hugmyndabíll á sportjeppagrunni er sýnishorn af framtíðinni: Framtíð sjálfkeyrandi bíla þar sem stjórntæki ökumanns eru nánast falin.
Ef maður á lítinn bílskúr er gott að eiga enn minni bíl. En maðurinn í meðfylgjandi myndbandi er búinn að reikna nákvæmlega út hvernig hann kemur bílnum inn í bílskúr sem er svo lítill að hann passar næstum í úlpuvasann. Já, og svo þarf maðurinn auðvitað að komast út úr bílnum.