Flott jeppa- og pallbílasýning í Mosfellsbænum
Slydda og hraglandi stöðvaði ekki jeppaáhugamenn til að skoða öfluga pallbíla og breytta jeppa í Mosfellsbænum í dag, laugardaginn 25. janúar, enda er þessi áhugahópur um bíla sennilega vanur því að láta veður ekki stöðva sig mikið.
Í tilefni af þriggja ári afmæli Jeep® og RAM umboðsins á Íslandi var blásið til glæsilegrar sýningar á Jeep® jeppum og RAM pallbifreiðum hjá Ísband í dag.
Þar mátti sjá fjölmargar útgáfur af þeim bílum sem þeir eru að selja og með ýmsum breytingapökkum, allt frá því að hækka þá aðeins lítilega og upp í miklu stærri breytingar, þar á meðal Wrangler á bæði 37 tommu dekkjum og 40 tommudekkjum, sem er greinilega tilbúnir í allt!
Þarna mátti líka sjá úrval af öflugum RAM-pallbílum sem búið var að hækka og setja á stærri dekk.
Hér má sjá nokkrar svipmyndir frá sýningunni hjá Ísband í dag.
Aðrar umfjallanir
Ný Octavia frá Skoda verður bæði í boði sem tengitvinnbíll og með mildri tvinntækni líkt og í nýja Golf.
Peugeot 3008 hefur slegið í gegn á Íslandi og nú kemur hann fjórhjóladrifinn í tengitvinnútgáfu með drægni á 100% hreinu rafmagni allt að 59 km...
Margir muna eftir blessuðum ferðamanninum sem ætlaði á hótel á Laugaveginum en endaði á Siglufirði. Þar var nefnilega LaugaRvegur en hann hefði betur sleppt „r“ inu og farið á Laugaveg í Reykjavík. Það getur nefnilega verið óheppilegt að treysta um of á leiðsögugræjurnar, eins og margir hafa sannreynt!
Amazon og Rivian afhjúpuðu sérsniðna rafknúna sendibifreið á fimmtudaginn sem ætlar að fara á götuna í Bandaríkjunum á næsta ári...