19 rafmagnaðar gerðir bíla hjá Brimborg
Brimborg býður frá þeim fimm bílaframleiðendum sem Brimborg er umboðsaðili fyrir 19 gerðir rafmagnaðra, hlaðanlegra bíla. Um er að ræða 100% hreina rafmagnsbíla og tengiltvinnbíla (Plug-In Hybrid) sem henta mismunandi þörfum Íslendinga.
Meðfylgjandi myndir eru af:
Volvo XC90 fjórhjóladrifinn Plug-in Hybrid jeppi
Þetta er þróun lúxusjeppans. 7 sæta og 390 hestafla tengiltvinnjeppi með 44 km rafmagnsdrægni sem dugar í allt daglegt amstur. Með þremur akstursstillingum sem þú getur valið um geturðu farið í gegnum daginn með núll útblástur í hreinni rafmagnsstillingu (Pure Electric Mode), brunað í gegnum hann í raforkuham (Power Mode) eða hámarkað skilvirkni og möguleika með tvinnstillingu (Hybrid Mode). Verð frá 10.590.000 kr.
Glænýr Peugeot 3008 SUV PHEV langdrægur 225 eða 300 hestafla tengiltvinnjeppi frá Peugeot með allt að 59 km drægni á 100% rafmagni. Verð frá 5.230.000 kr. Fáanlegur bæði fjórhjóladrifinn og framhjóladrifinn.
Glænýr Peugeot e-208 rafbíll með allt að 340 km drægni. Stökktu inn í næstu kynslóð af tækni. 80% hraðhleðsla á innan við 30 mínútum. Verð frá 3.790.000 kr. Fáanlegur í bensín-, dísil- og rafmagnsútfærslu.
Rafmagnaður, rúmgóður, sjö sæta, fjórhjóladrifinn, 457 hestafla tengiltvinnjeppi. Nægt rafmagn í 42 km sem dugar í allt daglegt amstur. Verð frá 10.990.000 kr.
Upplýsingar um fleiri rafmagnaða bíla hér í frétt Brimborgar
Aðrar umfjallanir
Toyota-gerðir komu 54 sinnum fram í „topp 10“ á 30 mörkuðum í Evrópu í 12 mánuði...
Áætlað er að rúmur milljarður fólksbíla sé á ferð eftir vegum veraldar daglega og ætti því ekki að koma sérstaklega á óvart að klaufaleg atvik komi upp í öllu kraðakinu. Eins og til dæmis að bílar festist. Á ótrúlegustu stöðum!
25 ára gamall fékk hann heldur betur að kynnast þeim viðbjóði sem einelti er. Kanadamaðurinn Nicholas Latifi hefur síðustu tvö árin notið tilverunnar sem ökumaður í Formúlu 1. Þar til fyrir tíu dögum. Þá breyttist allt.
Maður sem vann Mitsubishi Evo IX í bílahappdrætti var virkilega ánægður í tæpa tvo sólarhringa eftir að hann fékk bílinn. Svo tók varð allt vont: Hann eyðilagði bílinn og í kjölfarið fóru leiðindaskilaboð að berast frá ókunnugum.