Nýr Citroën ë-C4 100% rafbíll með 7 ára ábyrgð

Franski bílaframleiðandinn Citroën keyrir nú á fullu á rafmagnið og stefnir að því að allir bílar Citroën verði rafmagnaðir fyrir árið 2025.

image

Drægnin á á 100% hreinu rafmagni er 350 km og er hann á einstaklega hagstæðu verði frá 4.090.000 kr. með 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

image

Forsala hefst í Vefsýningarsal Brimborgar 21. desember

Forsala á Citroën ë-C4 100% rafbíl hefst í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborgar á miðnætti 21. desember. Sýningar- og reynsluakstursbílar koma til Íslands í lok janúar og afhendingar til viðskiptavina hefjast í febrúar.  

image

Nýr Citroën ë-C4 rafbíll með 350 km drægni á 100% hreinu rafmagni

Brimborg kynnir Citroën ë-C4 100% rafbíl með 50 kWh drifrafhlöðu og varmadælu sem endurnýtir orku fyrir miðstöðina og skilar því framúrskarandi drægni skv. WLTP mælingu eða 350 km á 100% hreinu rafmagni. Citroën ë-C4 er framdrifinn, frábær í akstri í snjó og því einstaklega hentugur við íslenskar aðstæður.

Ríkulegur staðalbúnaður og þægindi í hæsta flokki

Citroën bílar eru þekktir fyrir þægindi í hæsta flokki og er Citroën ë-C4 þar engin undantekning. Innrétting er nútímaleg og tæknileg. Ríkulegur staðalbúnaður prýðir Citroën ë -C4. Í grunnbúnaði er snjallmiðstöð með tímastillingu og forhitun sem tryggir ávallt heitan bíl, varmadæla sem eykur virkni miðstöðvar og drægni bíls, 10” snjallsnertiskár í mælaborði, snjallhemlun sem virkar í myrkri og greinir gangandi og hjólandi vegfarendur, ökumannsvaki, hraðastillir, veglínustýring sem aðstoðar við að halda stefnu á vegi, tölvustýrð miðstöð með loftkælingu og 18” álfelgur svo fátt eitt sé nefnt.

image

Hin byltingarkennda fjöðrun Citroën ë-C4 er afar einföld en snjöll og áhrifarík og skilar eintaklega mjúkri og skemmtilegri akstursupplifun.

Hefðbundinn fjöðrunarbúnaður er byggður upp af gormi og dempara með gúmmípúða í enda fjöðrunar en Citroën bætir við vökvastoppara að ofan og neðan í demparanum sjálfum.

Snjallmiðstöð og fjarstýrð forhitun tryggir ávallt heitan bíl

Citroën ë-C4 er með snjallmiðstöð með tímastillingu á forhitun á innra rými sem tryggir ávallt heitan bíl. Hægt er að tímastilla forhitun alla vikudagana fyrirfram, einfalt og þægilegt.  Fjarstýrð virkni gerir kleift að fjarstýra forhitun í MyCitroën® appinu.  

Einnig er einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyCitroën® appinu ásamt því að vera með yfirsýn um bílinn þ.á.m. stöðu á drægni, hleðslustöðu, þjónustuyfirlit og panta tíma á þjónustuverkstæði.

30 mínútur í 80% drægni í 100 kW hraðhleðlustöð

Hægt er að fullhlaða drifrafhlöðu Citroën ë-C4 með íslenskri raforku á fimm til sjö og hálfri klukkustund í öflugri heimahleðslustöð því hann er fáanlegur með eins fasa 7,4 kW eða þriggja fasa 11 kW innbyggðri hleðslustýringu eða í 80% drægni á 30 mínútum í 100 kW hraðhleðslustöð.

image

Rafmagnsvélin gerir það mögulegt að endurheimta stöðuorku sem verður tiltæk við hemlun eða þegar slegið er af gjöfinni.

Þá hleður bíllinn drifrafhlöðuna og nýtir þannig orku sem ella hefði farið til spillis og eykur þannig drægni bílsins à hreinu rafmagni. (B-stilling í sjálfskiptingu)

Einstaklega hagstætt verð frá 4.090.0000 kr. og hagstæð græn fjármögnun

Brimborg býður Citroën ë-C4 á einstaklega hagstæðu verði eða aðeins frá 4.090.000 kr. Brimborg býður bílaskipti úr eldri bíl upp í nýjan Citroën ë-C4 100% rafbíl sem gildir sem útborgun og með grænni fjármögnun er mánaðargreiðslan aðeins 26.620 kr. á mánuði. Með bílaskiptum úr eldri bíl í nýjan þá sparast mikið í eldsneytiskaupum og lægri bifreiðagjöldum sem léttir mánaðargreiðsluna enn frekar. Mánaðargreiðslan í þessu dæmi miðast við innborgun eða uppítöku á eldri bíl á 2.000.000 kr. og 8 ára lán og er hlutfallstala kostnaðar í þessu dæmi 5,41%.

Hleðslustöð er auðvelt að fjármagna með bílakaupunum og þú færð meira að segja virðisaukaskattinn endurgreiddan bæði af hleðslustöðinni og uppsetningu hennar.

Aldrei hefur verið auðveldara að taka þátt í orkuskiptunum.

Örugg gæði Citroën með lengri ábyrgð hjá Brimborg

Örugg gæði Citroën ë-C4 100% rafbíls eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Citroën ë-C4 100% rafbíl er að finna á vef Citroën á Íslandi citroen.is eða hjá sölustjóra Citroën á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur  eða í síma 515 7802.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is