Volkswagen mun koma með 34 nýjar gerðir og afleiður þeirra á árinu 2020
WOLFSBURG - Volkswagen vörumerkið stefnir að því að setja á markað 34 nýjar gerðir og afleiður á næsta ári þar á meðal rafmagnaða bíla til að draga úr losun þar sem ströng ný CO2-lækkunarmarkmið eru sett í áföngum af Evrópusambandinu.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442730_3734458801041344903_4152588409000.jpg)
ID Crozz, sem er hér á mynd, forsýnir hönnunina á ID Next sem verður fyrsti rafmagns sportjeppi VW. Framleiðslubíllinn verður kallaður ID4 á sumum mörkuðum, þar á meðal í Bandaríkjunum.
VW stendur frammi fyrir miklum fjárfestingum í hreinni og sjálfkeyrandi tækni og hefur aukið söluhlutdeild jeppa með hærri framlegð til að hjálpa til við að fjármagna breytingu í atvinnulífinu í átt að ökutækjum með litla losun mengandi efna.
Kjarnamerki VW bættur við markaðshlutdeild á þessu ári og hefur aukið rekstrarhagnað sinn verulega, sagði einn stjórnenda VW, Ralf Brandstaetter, á blaðamannafundi í Wolfsburg. Vörumerkið er á réttri braut til að ná metafkomu í rekstri á þessu ári, sagði hann.
Aukin hlutdeild í sölu sportjeppa
Vörumerkið hefur aukið hlut sinn í sportjeppum sem seldir voru upp í 42 prósent í Bandaríkjunum og 37 prósent í Evrópu, sagði hann.
„Á þessum grundvelli getum við tryggt arðsemi svo að við getum markvisst fjárfest í rafvæðingu og stafrænni framleiðslu okkar,“ sagði hann og vísaði til bæði kostnaðarlækkunar og aukins hlutar sportjeppa.
Að meðtöldum fjármagnsútgjöldum og eignfærðum þróunarkostnaði mun vörumerkið fjárfesta 11 milljarða evra í rafknúnum ökutækjum og 8 milljarða til viðbótar í tengitvinntækni og stafrænni framleiðslu á næstu fimm árum.
Auknar kröfur varðandi losun
ESB fyrirskipað að draga úr losun CO2 í bílaflotanum niður í 95 grömm á hvern kílómetra árið 2021, niður úr 120,4 g / km í fyrra, með háum sektum ef bílaframleiðendur missa af einstökum markmiðum sínum.
„Við munum auka tengitvinnbíla og „hybrid“ frá Golf og Tiguan allt upp í Touareg,“ sagði Brandstaetter.
Mikil aukning í framboði
VW tilgreindi ekki nöfnin á öllum 34 nýjum gerðum VW-vörumerkisins sem koma á markað á næsta ári, né heldur á hvaða mörkuðum þær verða seldar. Í yfirlýsingu fyrirtækisins segir að frumsýningar innihaldi 12 sportjeppa og átta rafmagns- eða tvinnbíla.
„Auðvitað verða líka nokkrar aðrar sérgerðir eins og T-Roc Cabrio, Arteon Shooting Brake og Tiguan R,“ sagði Brandstaetter.
Með hjálp þeirra stefnir VW vörumerkið að ná 4 prósent til 5 prósent rekstrarhagnaði árið 2020, sagði hann.
(Reuters og Automotive News Europe)
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1639204806_1732682147063934354_6779406144016956.jpg)
Hverjir búa til kappakstursbrautirnar? Nær væri að spyrja „hver“, því einungis fjórir menn eru samþykktir af FIA sem brautarhönnuðir og þar af einn sem hanna má brautir fyrir Formúlu 1.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612444002_6753694424470582024_5424678833000.jpg)
Alþjóðlega bílasýningin í París, eða Mondial De L'Auto Paris, er til skiptis annað hvert á á móti bílasýningunni í Frankfurt í Þýskalandi.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612440063_1719564953639757634_1485432679000.jpg)
Volkswagen Group hefur hafið reglulega framleiðslu á ID4 crossover-bílnum, annarri gerðinni í fyrirhugaðri fjölskyldu rafknúinna ökutækja sem...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612440496_8082419439291942006_1918331010000.jpg)
Audi hefur endurskoðað SQ7 og SQ8 sportjeppana sína og búið þá með nýrri 4,0 lítra túrbó V8 bensínvél. Nýja vélin kemur í stað...