Veturinn er rafmagnaður hjá Heklu!
Núna á laugardaginn, 14. janúar næstkomandi, blæs Hekla til rafmagnaðrar vetrarsýningar að Laugavegi 174 á milli klukkan 12 og 16.
Árið 2023 verður viðburðarríkt fyrir Heklu sem fagnar meðal annars 90 ára afmæli. Á sýningunni verður lögð áhersla á rafmagnsbíla og allt sem viðkemur hleðslulausnum.
VW ID.Buzz
ID fjölskylda Volkswagen hefur vakið mikla athygli og fer ört stækkandi og inniheldur nú fimm tegundir, nýlega bættust við ID.5 og ID.Buzz, sem leysir gamla rúgbrauðið af hólmi, sem margir eiga svo góðar minningar um.
Audi e-tron GT
Hinn glæsilegi Audi e-tron 55 verður á sýningunni, en nokkrir bílar eru til á lager sem hægt er að fá afhenta á næstu dögum.
Mitsubishi Eclipse Cross
Að auki verður hinn vinsæli Mitsubishi Eclipse Cross á svæðinu sem var mest seldi tengiltvinn bíll á Íslandi árið 2022.
Þetta er stórt ár fyrir Heklu því auk 90 ára afmælis eru einnig liðin 70 ár frá því að Hekla hóf innflutning á bílum frá Volkswagen.
Þetta verður því spennandi ár fyrir okkur og margt áhugavert framundan sem vert er að fylgjast með.
(Fréttatilkynning frá Heklu)
Aðrar umfjallanir
Hún ók eins og herforingi „upp eftir“ Kárahnjúkastíflu á Range Rover Sport fyrir fáeinum mánuðum og reyndi það nokkuð á bílstjóra og bílinn. Hér er tæknilega hlið þessa áhugaverða „bíltúrs“ skoðuð.
Bestu og virtustu bílaframleiðendur með jafnvel 100 ára reynslu eða meira gera stundum þau mistök að reyna að finna upp hjólið en með slökum árangri...
Hvað er betra eftir erfiðan vinnudag en góð hávaðakeppni? Manni dettur eitt og annað betra í hug en hvað um það. Hér eigast við tveir náungar, hvor á sínum VW Golf 6 GTI og flugeldasýningin hefst. Með tilheyrandi hávaða.
Þessu var auðsvarað á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Á þeim tíma voru enn mjög margir malarvegir um allt land...