Euro NCAP „Best í flokki“ 2022
Euro NCAP tilkynnir um besta árangur í flokki á metári
Góður árangur hjá Tesla – bestir í tveimur flokkum: Model Y í flokki minn sportjeppa og Model S bæði í lúxusflokki og hreinna rafbíla
Þetta eru þeir bílar sem náðu hæstu heildareinkunnum, byggt á árangri þeirra fyrir verndun fullorðinna farþega, vernd barna sem farþega, vernd viðkvæmra notenda og öryggisaðstoðartækni.
Í fyrsta skipti eru tveir bílar frá Tesla á þessum lista og tveir kínverskir nýliðar á Evrópumarkað.
Góð útkoma hjá Ioniq 6
Hyundai IONIQ 6 náði einstaklega góðum árangri í farþegavernd fyrir fullorðna með 97%.
Kínverjar eru að koma sterkir inn
Árið 2022 var áberandi fyrir fjölda nýrra kínverskra vörumerkja sem komu til Evrópu og náðu frábærum árangri.
Frábær staða hjá Tesla með tvo sigurvegara í sínum flokkum
Tesla hefur haft mikil áhrif á evrópskan bílamarkað vegna hönnunar sinnar og byltingarkenndra bíla.
Model S hlaut einnig fimm stjörnu öryggiseinkunn í nóvember og fær verðlaunin Bestur í flokki hvort tveggja fyrir lúxusbifreiðar og hreina rafbíla.
Bæði Model S og Model Y hlutu hæstu einkunn sem Euro NCAP hefur veitt, eftir þeirra 2020/2022 verkferlum, með 92% einkunn
Mikilvæg einkunn
„Árið 2022 hefur verið eitt annasamasta ár Euro NCAP hingað til og við höfum séð marga nýja bílaframleiðendur og nýja tækni.
AÐEINS NÁNAR UM „BESTU BÍLA“ Í FLOKKI 2022
Ef Euro NCAP hefur prófað nógu marga bíla árið áður birtir Euro NCAP lista yfir þá bíla sem hafa staðið sig best í sínum flokkum.
Ekki er hægt að bera saman stjörnueinkunnir beint á milli mismunandi flokka ökutækja og því er birt „Best in Class“ (best í flokki) sem sýnir hvaða ökutæki hafa staðið sig betur en keppinautar þeirra.
Þar sem kröfurnar fyrir hverja stjörnueinkunn verða harðari á hverju ári, er samanburðurinn „Bestur í flokki“ aðeins gerður innan hvers almanaksárs þannig að öll ökutæki eru metin samkvæmt sömu stöðlum.
Frá og með árinu 2021 veitir Euro NCAP einnig verðlaun fyrir besta öryggi þeirra hreinu rafbíla sem það hefur prófað.
Þrátt fyrir að þessir bílar kunni að vera í mismunandi stærðarflokkum er vonast til að verðlaunin hjálpui neytendum sem eru að leita að hámarksöryggi í rafbílunum sínum.
Aðrar umfjallanir
Hann var mjög svalur, eigandi bílsins, þar sem hann þeytti sandi út um allt og gerði fallegar „áttur“ eða „kleinuhringi“ eins og sísvangur Kaninn kallar þær. Það breyttist skyndilega þegar fíni bíllinn hans festist rækilega. Þá fór að flæða að í Bar Harbor í Maine.
Ísband, umboðsaðili Jeep á Íslandi er byrjað að afhenda fyrstu Wrangler jeppana með rafmagni – eða rafmagnaðri tengitvinndrifrás...
Liðsstjórinn orðljóti, Guenther Steiner, er í miklu uppáhaldi hjá mörgum, þar á meðal þeirri er þetta ritar. Liðsstjóri Haas hefur staðið í ströngu en hvernig kom hann til sögunnar og varð liðsstjóri?
Þegar Dacia ákvað að endurbæta Sandero, söluhæsta litla bílinn sinn, stóð fyrirtækið frammi fyrir harðri spurningu: Hvernig á að bæta við nægri tækni til að mæta...