Lexus smíðaði rafbíl með „tilbúinni“ beinskiptingu
Fyrirtækið setti þessa nýju „skiptingu“ í UX crossover – en vekur ekki hrifningu hjá öllum
Beinskiptingin er nánast horfin. Jafnvel ef þú hunsar að beinskiptir bílar eru innan við 2 prósent af bílamarkaðnum í dag í Bandaríkjunum, þá verður þú að sætta þig við að umskiptin yfir í rafbíla munu líklega leiða til endaloka á því að við séum sjálf að skipta um gír segir bandaríski bílvefur Car and Driver.
Toyota vill breyta því og þess vegna sýnir fyrirtækið frumgerð rafbíls með „tilbúinni“ handskiptingu á gírum.
Fyrirtækið hefur eytt síðustu dögum í að sýna evrópskum blaðamönnum sérstaka útgáfu af Lexus UX 300e.
Vídeósem sýnir þessa tilbúnu skiptingu í rafbíl
Hér má sjá ökumann vera að „skipta um gír“ með þessari tilbúnu handskiptingu, en vinstra megin má sjá bílinn sem er með þessari nýju „skiptingu“.
Rafbílar hafa sjaldan fleiri en einn eða tvo gíra áfram, svo það er ólíklegt að þetta sé gagnleg tækni fyrir almenna rafbíla í framtíðinni.
En Lexus segist vera að þróa hugmyndina til að búa til meira grípandi rafbíla og gæti í raun notað kerfið á framleiðslurafbíl ef þróunarvinnan lofar góðu.
Við erum ekki viss um að eftirlíking á skiptingu gæti nokkurn tíma náð að leysa áhugann á skiptingu í rafbíll, segir Car and Driver, en þeir segjast vissulega hafa áhuga á að prófa það.
En þetta gæti komið í framleiðslu – ef marka má fréttir frá Toyota
Meðan á útgáfu beinskiptu útgáfunnar af GR Supra var að ræða var Toyota að nota myllumerkið „savethemanuals“. En svo virðist sem þetta hafi snúist um miklu meira en bara að vera með nokkra sportbíla - japanski bílarisinn vill virkilega að handskiptingar séu málið, ekki bara á lokaárum bíla með brunavélum, heldur víðar.
Electrified Sport hugmyndabíllinn – gæti komið í framleiðslu árið 2030.
Yfirverkfræðingur Lexus, Takashi Watanabe, sem stjórnaði smíði á hugmyndabílnum Lexus Electrified Sport Concept, hefur þetta að segja um skiptinguna:
En ökumaðurinn er fær um að upplifa allar tilfinningar beinskipts ökutækis.
Þetta er hugbúnaðarbundið kerfi, svo það er hægt að forrita það til að endurskapa akstursupplifun mismunandi ökutækja, sem gerir ökumanni kleift að velja valinn akstursmáta“.
Electrified Sport hugmyndabíllinn
Þegar er búið að sýna Electrified Sport hugmyndabílinn, er búist við að framleiðsluútgáfan af þessum eiginlega LFA arftaka komi árið 2030.
„Ég get ekki sagt þér hvenær við munum setja á markað framleiðslubíl sem byggir á Electrified Sport. En ég get staðfest að við erum að vinna í því. Þetta er ekki bara hönnunarhugmynd. Bílnum er ætlað að verða að veruleika“.
(vefsíður INSIDEEVs, Carscoops og Car and Driver)
Aðrar umfjallanir
Nú hafa myndir af nýjum Opel Astra kvisast út á vefnum. Opel staðfestir að þetta sé fyrsta kynlsóð rafdrifinnar útgáfu Opel Astra...
Ný kynslóð hins geysivinsæla sendibíls Renault Kangoo, sem kemur á markað á næsta ári, hlaut í nóvember alþjóðlega titilinn „Sendibíll ársins“ 2022
Daimler, móðurfyrirtæki Mercedes Benz var að birta kynningarmynd af Mercedes-Benz EQE, sem verður fólksbíll...
Það var búið að tilkynna íbúum við Huntley Street í Darlington með góðum fyrirvara að þann 10. maí yrði gatan malbikuð og voru skilti hér og þar með upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir. Íbúar áttu að færa bílana sína og það gerðu þeir. Allir nema einn. Einn BMW var ekki færður og hvað þá?